Handknattleiksdeild Fram og Sigfús Páll Sigfússon hafa samið til næstu 2ja ára. Sigfús hefur leikið undanfarin þrjú keppnistímabil með Valsmönnum og varð m.a. bikarmeistari með Hlíðarendaliðinu 2008 og 2009. Samningur Sigfúsar við Val rennur út í sumar.
Sigfús þarf ekki að kynna fyrir Frömurum. Leikmaðurinn byrjaði ungur að árum að vekja athygli í Safamýrinni og Einar nokkur Jónsson, aðalþjálfari m.fl. kvenna og aðstoðarþjálfari m.fl. karla, tók drenginn snemma á séræfingar. Sigfús lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk Fram undir stjórn Heimis Ríkharðssonar leiktíðina 2003-2004, þá aðeins 17 ára gamall. Haustið 2005 tók Guðmundur Þórður Guðmundsson við ungu liði Fram og lagði hann mikið traust á herðar Sigfúsar sem varð aðal leikstjórnandi liðsins tímabilið 2005-2006. Sigfús varð Íslandsmeistari með Fram á sömu leiktíð og var valinn bæði efnilegasti og besti sóknarmaður deildarinnar á árlegu lokahófi HSÍ. Sem leikmaður Fram var Sigfús valinn í A-landsliðið og hefur hann leikið tvo landsleiki fyrir Íslands hönd.
Undanfarin ár hefur Sigfús verið meðal fremstu leikstjórnenda landsins. Sigfús er gríðarlega útsjónarsamur leikmaður og fáir halda jafn góðu „flæði“ í sóknarleik og Sigfús. Sigfús hefur fiskað hvað flest vítaköst og brottvísanir í deildinni undanfarin ár.
Handknattleiksdeild Fram býður Sigfús hjartanlega velkominn heim og hlakkar til að sjá til kappans á fjölum Safamýrarinnar í blárri treyju á komandi vetri.
Frekari fréttir af leikmannamálum m.fl. karla eru væntanlegar.
Handknattleiksdeild Fram