HIÐ unga lið Fram í meistaraflokki kvenna, sem tekur nú þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu í fyrsta skipti í 19 ár, lék sinn fyrsta leik á heimavelli sl. fimmtudag, þegar ÍR kom í heimsókn í Safamýrina. Stúlkurnar urðu að sætta sig við tap, 2:3. Bryndís Jóhannesdóttir skoraði fyrir ÍR eftir aðeins tvær mín., en Elísabet Sara Emilsdóttir jafnaði fyrir Fram á 8. mín. og var hún þar með fyrsta Framstúlkan til að skora mark á Íslandsmóti í 19 ár.
Jóna Benny Kristjánsdóttir kom Fram síðan yfir á 48. mín., 2:1. Það dugði ekki, þar sem ÍR-stúlkur svörðuðu með tveimur mörkum. Tinna Karen Gunnarsdóttir og Bryndís skoruðu mörkin, 2:3.

Sigríður Björk Þorláksdóttir, þjálfari Fram, til hægri á myndinni, gefur lærisveinum sínum góð ráð í leikhléi í leiknum gegn ÍR.