Content

1.6.2010

Fram mætir ÍR í Bikarnum miðvikudagskvöld!


Fram-ÍR
Laugardalsvöllur
miðvikudagur 2. júní kl. 19:15

Fram hefur leik í 32-liða úrslitum Bikarsins eins og önnur lið Efstu Deildar.  Andstæðingarnir eru ÍR-ingar sem unnu KFK 7-2 í sínum fyrsta leik þann 19. maí.

ÍR-ingar hafa lengst af leikið í NæstEfstu Deild og því hafa Framarar haft fátt af þeim að segja undanfarin ár ef Reykjavíkurmótið er undanskilið.  Liðin mættust í NæstEfstu Deild 1996 og svo í Efstu Deild í einu heimsókn ÍR þangað 1998.  Framarar unnu báða leikina 1996 og fóru upp aftur. Í Efstu Deild 1998 áttu liðin i fallbaráttu og það skipti miklu fyrir Fram að vinna 3-0 í Breiðholtinu fyrri part sumars.  Síðan tryggði Fram sig uppi með 0-0 jafntefli í Laugardalnum í næst síðustu umferðinni.  ÍR-ingar voru viðsjárverðir í þessum fjórum deildarleikjum og hafa líka reynst það nokkrum sinnum síðan, t.d. í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins 2008, þegar þeir unnu Fram 1-0.

Liðin hafa bæði farið vel af stað í sitt hvorri deildinni.  Fram er með 8 stig, tvo heimasigra og tvö 2-2 jaftefli á útivöllum í Efstu Deild.  Í fyrstu deild byrjuðu ÍR-ingar á að vinna Gróttu og Njarðvík úti 2-1, og svo KA heima 2-1. Stóra próf ÍR-inga var svo gegn HK úti í 4. umferð, þegar þeir gerðu markalaust jafntefli og héldu þar með toppsætinu. Þjálfari ÍR er Guðlaugur Baldursson, en hann tók við góðu búi 2008, kom ÍR upp í 1. Deild þá og hefur átt ágætu gengi að fagna síðan. ÍR hefur gert sex mörk í 1. Deild og þar hafa fimm leikmenn skorað.

Liðin hafa tvisvar áður mæst í bikarnum, árin 1987 og 2003. 

08.07.87          Mjólkurbikar karla           Laugardalsvöllur     Fram   ÍR        6-0      

13.06.03          VISA-bikar karla            ÍR-völlur                    ÍR     Fram     1-5

Þrátt fyrir svipuð úrslit fóru þessir leikir Fram á gjörólíkum tímum...   

Fyrri leikurinn var fyrsti sigurinn í sjötta bikarsigri Fram, sem endaði með 5-0 sigri Fram á Víði Garði í úrslitaleik 1987.  Eftir sigurinn á ÍR lagði Fram Leiftur 3-1 og Þór Akureyri 3-1.  Árið 1987 voru ÍR-ingar í uppgangi og nýliðar í NæstEfstu Deild, Leiftur vann sér sæti í Efstu Deild og Þórsarar voru við toppinn í Efstu Deild og ansi duglegir að stríða Frömurum.  Víðismenn voru sömuleiðis í Efstu Deild og unnu hug og hjörtu knattspyrnuáhugamanna.

Síðari leikurinn var leikinn á erfiðari tímum. Fram var án sigurs í Efstu Deild þegar haldið var í Breiðholtið og það var kominn miður júní!  En markaskórnir fundust og í framhaldinu reyndist inneign fyrir nokkrum stigum til að halda sér í Deildinni.  Eftir sigurinn á ÍR vann Fram Hauka 4-2 eftir framlengingu en lauk svo keppni á KR-vellinum með 0-2 tapi.

Tilfinningin fyrir leik


Þetta er sterkasti andstæðingurinn sem Fram hefur í fengið í sínum fyrsta bikarleik frá því Þorvaldur tók við.  ÍR-ingar eru númeri stærri nú en Hvöt (2008) og Njarðvík (2009) voru þá.  Fram vann báða þá leiki 2-1 á heimavelli án þess að flugeldar kæmu við sögu.  



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l