Content

2.6.2010

Pínu blautt á Esjunni í gær.

Það var fríður hópur karla, kvenna og barna úr almenningsdeild FRAM sem gekk á Esjuna í gær.  Hópurinn var klæddur upp í FRAM boli svo ekki færi á milli mála hverjir væru á ferðinni  en sökum rigningar þá reyndist erfitt að láta bláu peysurnar njóta sín. Hópnum gekk vel á fjallið enda flestir í góðu formi eftir æfingar vetrarins, allilr skiluðu sér upp "að  steini"  og margir fóru alla leið á toppinn. Almennigsdeild FRAM stendur saman af hressu fólki á öllum aldri og gaman að sjá hvað þessi deild er drífandi og tilbúinn að brydda upp á skemmtilegum uppákomum eins og þessari.  Ef til vill verður gengið á fleiri fjöll í sumar en það verður þá kynnt síðar.



Hressir göngugarpar úr almenningsíþróttadeild FRAM.


Margt býr í þokunni. Hilmar og Jóhanna sæl á svip.

Hilmar og Jónas alsælir með árangurinn.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l