FRAM sigraði ÍR 2-1 í 32 liða úrslitum VISA bikarsins en leikurinn fór
fram á miðvikudagskvöldið við frábærar aðstæður.
Þorvaldur gerði tvær breytingar á liðinu frá Fylkis leiknum, Hjálmar kom aftur inn í stað Hlyns Atla og Ögmundur var í markinu í stað Hannesar. Gestirnir mættu hinsvegar með hálfgert varalið sem varð til þess að leikurinn var meir og minna spilaður á vallarhelmingi gestanna.
FRAM óð í færum allann leikinn en nýtingin var slök nema hjá Ívar Björnssyni skoraði bæði mörk heimamanna. Fyrra markið hans kom á 37. mín en þá skoraði hann með góðum skalla eftir hornspyrnu Sam Tillen. Það síðara kom svo á 48. mín en hann afgreiddi þá laglega fyrirgjöf Almarrs með því að negla boltanum í þaknetið.
Gestunum tókst svo að smella sér í eins og eina sókn undir lok leiksins og skoruðu eitt mark á 87. mín en voru aldrei nærri því að jafna leikinn.
KSÍ skýrsluna má finna hér.
Dregið verður í 16 liða úrslitum VISA bikarsins á mánudaginn.
Næsti leikur FRAM er svo gegn Selfossi á sunnudag kl. 19:15. Við hvetjum auðvitað alla stuðningsmenn FRAM til að smella sér í bíltúr á Selfoss til þess að hvetja strákana. Við minnum svo á að næsti heimaleikur FRAM verður þann 10. júní gegn KR.