3.6.2010
Kjartan Ragnarsson kosinn formaður FRAM
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins FRAM var haldinn í liðinni viku. Ekki var um átaka fund að ræða en nokkrar breytingar urðu á stjórn félagsins. Steinar Þór Guðgeirsson lét formlega af störfum sem formaður en Steinar hefur ekki verið við stjórnvölin í þó nokkurn tíma sökum anna í vinnu. Stefán Hilmarsson gjaldkeri FRAM til 15 ára gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa en framlag Stefáns til félagsins verður seint þakkað. Aðrir sem gengu úr stjórn voru Þuríður Guðnadóttir, Hrannar Hallkelsson og Ólafur Arnarsson sem tók að sér formennsku í handknattleiksdeildinn.
Knattspyrnufélagið FRAM þakkar öllu þessu frábæra fólki fyrir vel unnin störf.
En maður kemur í manns stað, í nýja stjórn voru valinn Arnar Arnarsson, Jón Eggert Hallsson, Stefán Pálsson, Þorbjörg Gunnarsdóttir og Jón Ármann Guðjónsson. Kjartan Ragnarsson var kosinn formaður FRAM, Ívar Guðjónsson og Þóra Guðmundsdóttir sitja sem fastast í stjórninni. Stjórnin mun hittast á næstu dögum og skipta með sér verkum.
Að fundi loknum var boðið upp á hefðbundnar veitingar.
Hér að neðan má sjá skýrslu formanns Kjartans Ragnarssonar.
Skýrsla stjórnar
Starfsárið 2009-2010 hefur verið sérlega áhugavert. Óhætt er að fullyrða að árið hafi verið eitt það allra stærsta í sögu félagsins. Fyrsta maí 2009 kom út afmælisbókin okkar, Frambókin, Knattspyrnufélagið Fram í 100 ár. Stefán Pálsson sagnfræðingur vann þar þrekvirki og er útkoman eins og menn vita glæsileg. Við Framarar þökkum Stefáni vel unnin störf. Í janúar 2010 kom svo út Framblaðið eftir nokkura ára hlé. Sigmundur Ó Steinarsson sá um útgáfu þess. Erum við Framarar gríðarlega heppnir að eiga menn eins og Stefán og Sigmund innan okkar vébanda.
Á starfsárinu 2009-10 hélt aðalstjórn félagsins áfram að hjálpa deildum félagsins til að halda utan um sitt bókhald og að aðstoða við rekstur deildanna. Byrjaði aðalstjórn á þessu árið 2008 og hefur þetta fyrirkomulag reynst vel og verður ekki aftur snúið. Afrekssjóður hefur tekið yfir stærstu styrktaraðila félagsins og úthlutað styrkjum til deilda í samræmi við umfang. Er það eindreginn vilji aðalstjórnar að tekjur og útgjöld deilda verði í jafnvægi og að rekstur deildanna verð i sjálfbær. Aðalstjórn félagsins leggur deildum félagsins til tækin til þass að svo megi verða.
Á seinasta starfsári afskrifaði aðalstjórn félagsins skuldir á handknattleiksdeild og FFR. Sér nú fyrir endan á þeirri tiltekt sem hefur verið í þeim deildum. Þeir sjálfboðaliðar sem starfa innan deilda félagsins ættu að geta einbeitt sér að uppbyggingu félagsins hér eftir og með aðstoð aðalstjórnar haldið félaginu í fremstu röð.
Knattspyrnutímabilið hófst í maí 2009. Má segja í sem fæstum orðum að langþráðum stöðuleika virðist vera náð í meistarflokki okkar í knattspyrnu. Árangurinn seinasta sumar var í samræmi við væntingar. Fjórða sæti í deild og annað sæti í bikar er árangur sem við Framarar getum sætt okkur við að svo stöddu. Við viljum þó meira í framtíðinni.
Við fall bankanna í október 2008 má segja að rekstrargrundvelli afrekssviðs félagsins hafi verið kippt í burtu. Fimm af stærstu styrktaraðilum félagsins urðu gjaldþrota nánast á einni viku. Stjórnir FFR og Handknattleiksdeildar brugðust hratt við og lágmörkuðu tjónið. Fram var í evrópukeppni í knattspyrnu sumarið 2009 og gaf það FFR örlítið svigrúm í rekstrinum. Því miður náði Fram ekki að halda evrópusætinu og því ljóst að enn frekari breytingar og niðurskurður var í kortunum fyrir keppnistímabilið 2010.
Um mánaðarmótin mars/apríl lauk samstarfi FFR og Brynjars Jóhannessonar framkvæmdarstjóra. Brynjar tók við starfi Framkvæmdarstjóra árið 2002 við afar erfiðar aðstæður. Vill ég fyrir hönd félagsins þakka Brynjari vel unnin störf fyrir félagið.
Handknattleikstímabilið byrjaði mjög illa hjá strákunum en eftir áramót réttu þeir úr kútnum og héldu sæti sínu í efstu deild. Stelpurnar héldu uppi merkjum félagsins í vetur og lönduðu bikarmeistaratitli núna í febrúar. Eftir harða báráttu um íslandsmeistartitilinn hafnað liðið að lokum í öðru sæti.
Það var okkur sem störfum í félaginu mjög ánægjulegt þegar Fram stofnaði aftur meistarflokk kvenna í knattspyrnu eftir nokkura ára hlé. Stelpurnar spila í fyrstu deild í sumar og verða heimaleikirnir í Safamýri. Aðalstjórn Fram mun styðja við bakið á meistarflokki kvenna í knattspyrnu meðan sá flokkur tekur sín fyrstu skref. Í framtíðinni mun rekstur meistarflokks kvenna færast alfarið til knattspyrnudeildar.
Aðrar deildir félagsins hafa starfað að hefðbundnum krafti. Taekwondo deildin dafnar vel og hefur iðkendum fjölgað örugglega. Hefur Taekwondo deildin hafið aftur störf í Safamýri eftir að hafa verið eingöngu í Grafarholtinu seinustu ár.
Skíðadeildin var vel rekin þrátt fyrir að starfsemin hafi verið í lágmarki vegna snóleysis. Er skíðadeildin tilbúin í bátana ef aðstæður breytast.
Almenningsdeild vex stöðugt. Örugg stjórn íþróttaskóla og leikfimi fyrir þá sem vilja hefur verið aðalstarfsemi þeirrar deildar undanfarið. Stofnin gönguhóps í Grafarholti og samstarf við handknattleiksdeild við að koma leikmönnum í form eru nýmæli. Nú liggur fyrir aðalstjórn beiðni um að endurvekja körfuknattleiksdeild félagsins og keppa undir merkjum félagsins í annari deild. Er það vilji aðalstjórnar að til að byrja með verði körfuknattleiksdeildin starfrækt undir almenningsdeild. Útvíkkun almenningsdeildar er eitt að markmiðum aðalstjórnar.
Íþróttamaður Fram árið 2009 var kosinn í lok desember. Stella Sigurðardóttir handknattleikskona er vel að titlinum komin. Glæsilegur fulltrúi Fram innan vallar sem utan.
Yngri flokkar félagsins hafa eflst gríðarlega seinustu ár. Spilar þar hið nýja hverfi okkar í Grafarholti/Úlfarsárdal stórt hlutverk. Einnig hefur gæði þjálfunar verið aukin markvisst. Aukinn iðkendafjöldi og betri þjálfarar skila að sjálfsögðu betri árangri. Er þessi fjölgun iðkenda bestu tíðindin á seinasta ári þó af nógu sé að taka.
Félagslíf félagsins hefur verið sérlega gott undanfarið ár. herrakvöld er á sínum stað, þorrablót er að festa sig í sessi, hangikjöt upp uppstúf orðinn fastur liður í aðventunni, uppskeruhátíðir deildanna orðnar veglegar. Afmæli félagsins er auðvitað alltaf á sínum stað. Kvennakvöld og árgangamót í fótbolta eru búin að festa sig í sessi og golfmót félagsins verður í sumar. Aðalstjórn félagsins hefur lagt kapp við að efla félagslífið og hvet ég hér með alla Framara til að mæta á viðburði félagsins. Því fleiri því betra.
Af framkvæmdum Fram og Reykjavíkurborgar í Úlfarsárdal er það að frétta að ekkert hefur gerst hvað framkvæmdir varðar síðan haustið 2008. Hefur aðalstjórn sýnt Reykjavíkurborg mikinn skilning í kjölfar bankahrunsins. Í raun má segja að Fram hafi sýnt Reykjavíkurborg of mikinn skilning. Við byrjuðum á að gefa borginni tima til að átta sig á stöðunni og ná tökum á sínum málum. Í ágúst 2009 lögðum við til hugmynd að viðaukasamning sem Reykjavíkurborg sá sér ekki fært að svara. Í nóvember lagði Fram til tilboð sem var mjög hagstætt fyrir Reykjavíkurborg. Hafa þó nokkrir fundnir verið haldnir um það tilboð en Reykjavíkurborg hefur enn ekki svarað tilboðinu formlega. Í febrúar sendi fram inn annað tilboð og hófsamara. Því tilboði hefur heldur ekki verið svarað formlega. Í mars sendi aðalstjórn Fram inn enn eina hugmyndina að viðaukasamningi til Reykjavíkurborgar. Er það von okkar að Reykjavíkurborg fari að koma að samningsborðinu. Þrátt fyrir mikinn samningsvilja Fram hefur ekkert gerst og hefur okkur þótt sérlaga skrítið að sjá borgina ganga frá samningum við önnur félög í millitíðinni. Má þar nefna Þrótt, Fjölni, Fylki og Golfklúbb Reykjavíkur. Ljóst er að félagið sættir sig ekki við þó stöðu sem komin er upp. Má allt eins búast við að vanefndir Reykjavíkur við samning þann sem var undirritaður í 01. maí 2008 endi fyrir dómstólum. Undir það erum við búnir.
Í september 2009 fór vel skipuð sveit Framara til Hveragerðis til að koma með hugmyndir að nýju skipuriti og vinna að stefnumótun félagsins. Tókst fundurinn frábærlega. Mega félagsmenn búast við stefnumótunarplaggi fljótlega. Skipurit félagsins var aftur móti sett strax í endurskoðun. Stefnumótunarnefnd skilaði niðurstöðu í desember 2009 og var hið nýja skipurit lagt fram á aðalstjórnarfundi í janúar 2010. Deidir félagsins höfðu skipuritið í mánuð til athugunar. Í febrúar 2010 var nýtt skipurit samþykkt samhljóða í aðalstjórn.
Í ágúst 2009 réð Fram íþróttastjóra fyrir Grafarholt/Úlfarsárdal. Fyrir valinu var hægri bakvörður meistaflokks félagsins Daði Guðmundsson. Til að byrja með er starfshlutfallið 60% en núna í sumar mun það aukast í 100%. Nú seinast í mars réð aðalstjórn félagsins afreksstjóra til að leiða hið nýstofnaða afrekssvið. Jón Sigurðsson ber með sér góðan þokka og er maður sem aðalstjórn ber miklar vonir til. Er það trú okkar að hið nýja skiputit og hið nýja starf afreksstjóra efli starf afreksíþrótta félagsins enn frekar.
Í október 2008 fór Steinar Þór Guðgeirsson fráfarandi formaður okkar inn í skilanefnd Kaupþings. Fljótlega tók hann við formennsku skilanefndarinnar. Frá þessum tímapunkti gat Steinar ekki sinnt störfum sínum fyrir félagið sem skildi en var þó í reglulegu símasambandi við meðlimi aðalstjórnar og vonaði eins og svo margir að þetta yrði bara tímabundið ástand. Í desember 2009 sagði Steinar Þór sig frá störfum fyrir félagið og vil ég fyrir hönd félagsins þakka Steinari frábær störf fyrir félagið. Vonandi kemur Steinar fljótt aftur til starfa fyrir félagið. Fleiri meðlimir aðalstjórnar hverfa frá á þessum tímapunkti. Stefán Hilmarsson hættir störfum fyrir aðalstjórn. Hefur Stefán verið á aðalstjórn félagsins síðan 1995. Er framlag Stefáns á þessum fimmtán árum ómetanlegt. Hrannar Hallkelsson og Þuríður Guðnadóttir munu einbeita sér að öðrum verkefnum fyrir félagið næsta árið. Ólafur Arnarsson hverfur einnig úr aðalstjórn og hefur tekið við formennsku handknattleiksdeildar. Þökkum við þeim Stefáni, Hrannari, Þuríði og Ólafi fyrir gott starf fyrir aðalstjórn félagsins.
Knattspyrnufélagið Fram er afar þakklátt þeim fjölmorgu sjálfboðaliðum sem hafa lagt sig fram við að sinna rekstri deilda félagsins og hafa komið að starfsemi félagsins á einn eða annan hátt. Án þessa úrvalsfólks væri rekstur félagsins ómögulegur.
Að lokum vil ég nota þetta tækifæri og þakka okkar frábæra starfsfólki fyrir vel unnin störf. Ég held að það megi fullyrða það að ekkert félag á landinu hafi yfir jafn góðu starfsfólki að ráða. Kristinn Rúnar Jónsson, Þór Björnsson, Daði Guðmundsson, Þóra Guðmundsdóttir, Jóhanna Halldórsdóttir, Jón Sigurðsson og að ógleymdum húsvörðum okkar þeim Tedda og Alex. Frábært starfsfólk hjá okkar ástsæla félagi.
Með Framkveðju
Kjartan Þór Ragnarsson varaformaður Knattspyrnufélagsins Fram
« Til baka |
Senda á Facebook