Content

4.6.2010

Jóhann Gunnar heim í Safamýrina

Vinstrihandarskyttan Jóhann Gunnar Einarsson  og handknattleiksdeild Fram hafa gert með sér samkomulag til næstu 2ja ára.

Það er aðeins einn Jói Einars!

 

Jóhann, sem verður 25 ára í haust, hefur leikið með Fram allan sinn feril, fyrir utan stutta dvöl í Þýskalandi.  Jóhann var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Guðmundar Guðmundssonar leiktíðina 2005-2006.  Jóhann er fæddur markaskorari og gerði 419 mörk í 69 leikjum, eða 6,1 mark að meðaltali í leik, á þremur keppnistímabilum með Fram árin 2005-2008.  Það gleymist oft þegar fjallað er um Jóhann að hann er einn af betri varnarbakvörðum landsins og ótrúlega lunkinn að vinna boltann af andstæðingum sínum.

 

Árið 2009 samdi Jóhann við þýska 3. deildarfélagið SVH/MEG Kassel. Þýska félagið lenti í fjárhagsvanda í kjölfar þess að missa sinn stærsta styrktaraðila og ákvað Jóhann að halda heim á leið þrátt fyrir áhuga þýskra liða í neðri deildum.

 

Þessi söng í sammaranum fjær í leik á móti HK 2008.

 

Jóhann Gunnar á 8 landsleiki fyrir A-landslið Íslands.

 

Jóhann hefur verið lykilmaður í að tryggja Fram þá titla sem félagið hefur unnið til hin síðari ár.  Auk þess að hafa verið markahæsti leikmaður liðsins þegar Fram varð síðast Íslandsmeistari var Jóhann í lykilhlutverki þegar Fram hampaði Deildarbikarmeistaratitlunum 2008 og 2009.

 

Jóhann er annar Framarinn úr Íslandsmeistaraliði Fram frá 2006 sem kemur heim í Safamýrina í sumar eftir að Reynir Þór Reynisson tók við þjálfun liðsins, en fyrir skömmu samdi handknattleiksdeildin við Sigfús Pál Sigfússon. Tveir „ungu“ leikmannanna úr Íslandsmeistaraliði Fram frá 2006 eru komnir heim.

Á myndinni eru, efri röð f.v.; Jón Eggert Hallsson, Gunnar Harðarson, Jóhann Gunnar og Einar Jónsson.  Neðri röð f.v.; Rúnar Kárason, Björn Friðfinnsson og Sigfús Páll.

 

Handknattleiksdeild Fram býður Jóhann innilega velkominn heim.

 

Frekari fréttir af leikmannamálum m.fl. karla eru væntanlegar næstu daga.

 

Handknattleiksdeild Fram



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l