Content

5.6.2010

FRAM heimsækir Selfyssinga á sunnudagskvöldið!

Selfoss - FRAM
Sunnudaginn 6. júní kl. 19:15
Selfossvelli




Fram hefur ekki áður mætt Selfossi, meisturum 1. deildar 2009, í Deildakeppninni.  Liðin mættust í Deildabikarnum 2009 og gerðu 1-1 jafntefli.  Liðin mættust svo aftur í vor í Deildarbikarnum og þá vann Fram 3-1 sigur, með mörkum Tómasar Leifssonar, Halldórs Hermanns og Alexanders Veigars Þórarinssonar, en Jón Daði Böðvarsson gerði mark Selfoss.

Þá mættust liðin í Bikarnum (32-liða) árið 2001 þegar Fram vann 6-0, en þá var Selfoss í 2. Deild.  Sá leikur er eini leikur liðanna á Selfossi hingað til.
Viðar Guðjónsson (2 mörk, Þorbjörn Atli Sveinsson 2 mörk, Baldur Knútsson og Edilon Hreinsson gerðu mörk Fram.

Selfoss leikur í fyrsta skipti í Efstu Deild.  Félagið hjó nærri sæti í Efstu Deild 1986 og 1987 en dalaði svo og ól lengi manninn í 2. Deild á 10. áratugnum og fram yfir árið 2000.  En undanfarin þrjú ár hafa Selfyssingar stokkið upp á við.  Þeir unnu 2. Deild 2007, urðu í 3. sæti 1. Deildar 2008 og unnu loks 1. Deild 2009.  Ekki verður annað sagt en Selfoss hafi byrjað vel í ár og unnu m.a. KR á KR-vellinum, nokkuð sem Framarar t.d. hafa ekki gert síðan 2002. Selfoss er í 6. sæti fyrir leik með sjö stig, hafa unnið KR og Hauka, gert jafntefli við Stjörnuna og tapað fyrir Keflavík og Fylki. 

Heima og úti:
Selfyssingar virðast jafn vígir á heima (1-1-1) og útivelli (1-0-1).  Framarar hafa gert jafntefli í báðum útileikjum sínum, 2-2 og í bæði skiptin jafnað eftir hafa lent 0-2 undir.

Menn beggja félaga:
Ingólfur Þórarinsson (Ingó Idól) lék með Fram 2005 og 2006, en hann er frá Selfossi eins og alþjóð veit. 

Líklegt byrjunarlið FRAM:
Það verða líklegast ekki margar breytingar á byrjunarliði FRAM frá síðasta leik sem var í VISA bikarnum gegn ÍR en við eigum von á því að Hannes Þór komi aftur í markið. Eina spurningin er hvort Halldór Hermann verði búinn að ná sér eftir að hafa meiðst í bikarleiknum gegn ÍR.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l