Content

6.6.2010

FRAM sigraði Selfoss 2-1 þar sem Joe & Hjálmar sáu um mörkin!

FRAM spilaði sinn fyrsta deildarleik gegn Selfyssingum í kvöld á gervigrasvelli þeirra síðarnefndu. Þorvaldur þjálfari gerði nokkrar breytingar á liðinu frá síðasta leik (bikarleiknum gegn ÍR). Hannes Þór kom aftur í markið. Jón Orri & Joe Tillen léku sína fyrstu leiki í byrjunarliðinu í sumar. Ögmundur, Halldór Hermann & Tómas voru meðal varamanna í kvöld. Þetta hafði það í för með sér að Jón Guðni færðist inn á miðjuna og Jón Orri lék í stöðu miðvarðar.

Það var ekki langt liðið á leikinn (einungis 4 mínútur) þegar heimamönnum tókst að skora eftir hafa náð upp smá pressu á mark FRAM. Fyrirgjöf kom frá vinstri og einhver misskilningur var í vörninni því einn Selfyssingurinn var aleinn á fjærstöng og fékk það þægilega verk að setja boltann inn. Ekki beinlínis byrjunin sem menn voru að vonast eftir en svona er þetta stundum.

En heimamenn voru ekki lengi yfir því fjórum mínútum síðar hóf Jón Orri eina ágæta sókn FRAM með sendingu á Ívar Björnsson sem stoppaði ekki lengi með boltann því hann átti þessa fínu stungu sendingu á Joe Tillen sem var þar með kominn einn á móti markmanni og kláraði færið örugglega. Foreldrar Tillen bræðrana voru einmitt meðal áhorfenda í kvöld. Ekki leiðinlegt fyrir þau að sjá Joe skora!

Um miðjan fyrri hálfleik fengu svo heimamenn algjört dauðafæri er Sævar Þór Gíslason komst einn í gegnum vörn FRAM og lék framhjá Hannes Þór en náði einungis að setja boltann í hliðarnetið. FRAM fékk einnig nokkur ágætis færi í fyrri hálfleik en náði ekki skora. Staðan í hálfleik var því 1-1 sem var nokkuð sanngjarnt miðað við frammistöðu beggja liða.

Það var svo harðákveðið FRAM lið sem mætti til leiks í síðari hálfleik. Greinilegt var að Þorvaldur hafði leyst úr nokkrum smávægilegum hnökrum sem voru í gangi á miðjunni og síðari hálfleikur var því nánast alveg í eign FRAM.

Á 61. mín náði FRAM liðið góðri sókn, Jón Guðni fékk þá góða sendingu rétt fyrir utan vítateig Selfyssingina, lék með boltann inn í vítateiginn, tók svo nokkrar vel valdar gabbhreyfingar og lagði svo boltann laglega með hægri á fjærstöng þar sem Hjálmar var mættur til að klára málið. Þar með var búið að snúa leiknum við eftir að hafa lent einu marki undir. Stuttu eftir markið fékk svo FRAM óbeina aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Selfyssinga, boltinn var þá lagður út á Jón Guðna sem átti hörkuskot rétt framhjá markinu.

Eftir þetta gerðu Selfyssingar nokkrar breytingar á liði sínu og reyndu að komast aftur inn í leikinn, þeim tókst að skapa smá hættu á köflum fyrir framan mark FRAM en það var þá helst eftir föst leikatriði sem slíkt gerðist. Eftir eitt slíkt þurfti Jón Guðni meðal annars að bjarga á marklínu en lengra komust heimamenn ekki og lokatölur leiksins voru 1-2 fyrir FRAM.
Þess má geta að í síðari hálfleik komu þeir Tómas, Guðmundur M & Kristinn Ingi inná sem varamenn í stað Ívars, Hjálmars & Joe.

Heilt yfir var þetta ágætis leikur hjá FRAM liðinu. Vörnin stóð sig vel og Jón Orri átti fantagóða innkomu í liðið, steig varla feilspor. Jón Gunnar var einnig sérstaklega öflugur í síðari hálfleik.

KSÍ skýrsluna má svo finna hér.

Liðið er núna í öðru sæti í PEPSI deildinni, tveimur stigum á eftir Keflvíkingum og á leik til góða. Sem er einmitt gegn KR núna á fimmtudagskvöld. Með sigri í þeim leik gæti FRAM komist í efsta sætið. Við hvetjum því alla FRAMara til þess að fjölmenna á Laugardalsvöllinn á fimmtudagskvöldið en leikurinn hefst kl. 19:15.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l