7.6.2010
Bikarinn: Fram dróst úti gegn Fylki
Í dag var dregið í 16-liða úrslit Bikarkeppninnar, en þau fara fram 23.-24. júní.
Fram dróst úti gegn Fylki, en annars drógust liðin sem hér segir:
Víkingur Ólafsvík - Fjarðabyggð
BÍ/Bolungarvík - Stjarnan
Fylkir - Fram
Fjölnir - KR
ÍA - Þróttur R
Víkingur - Valur
Keflavík - FH
Grindavík - KA
Fram hefur einu sinni áður leikið á Árbæjarvelli í Bikarkeppninni. Árið 1986 lék Fram við Fylki í 16 liða og Gummi Torfa gerði eina markið í 1-0 sigri. Leikurinn fór fram á möl í Árbænum og Fylkir lék þetta ár í 2. Deild en Fram varð Íslandsmeistari.
Annars eru bikarleikir Fram og Fylkis skv. ksi.is þessir:
31.7.1974 00:00 Bikarkeppni karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 4-0
5.8.1981 00:00 Bikarkeppni karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 1-0
9.7.1986 00:00 Mjólkurbikar karla Fylkisvöllur Fylkir Fram 0-1
28.9.2002 14:00 Coca-Cola bikar karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 1-3
30.7.2009 19:15 VISA-bikar karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 2-0
Árið 1974 mætti Fram ÍA í næstu umferð og tapaði 0-2. En öll hin árin, í síðustu fjögur skipti, komst Fram í úrslit og tapaði: gegn ÍBV (2-3) 1981, gegn ÍA (1-2) 1986, gegn Fylkismönnum sjálfum (1-3) 2002 og svo gegn Blikum í fyrra.
Ágætis áskorun, greinilega.
« Til baka |
Senda á Facebook