Content

8.6.2010

Meistaraflokksleikir: Daði nálgast 300 - Hannes með 100. leikinn gegn Selfossi


Í liði Fram hafa fjórir leikmenn leikið fleiri en 100 leiki með meistaraflokki, það eru þeir Daði Guðmundsson (299), Ívar Björnsson (139) , Kristján Hauksson (136) og Hjálmar Þórarinsson (115).

Á sunnudagkvöldið slóst Hannes Þór Halldórsson markvörður í hópinn, þegar hann lék sinn 100. mfl. leik fyrir Fram.  Hannes er 60. Framarinn sem nær þessum áfanga.  Líkt og Hjálmar, þá kom hann til Fram 2007 og hefur því náð þessum áfanga á fjórða keppnistímabilinu með félaginu.

Leikurinn var 299. mfl. leikur Daða Guðmundssonar og hann nær því 300. leiknum næst þegar hann stígur á gras í Framtreyjunni.  Daði er 8. leikjahæsti Framarinn frá upphafi.  Daði lék fyrst með Fram 1997.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l