Content

9.6.2010

FRAMherjar - Allir sem einn!

Lið FRAM hefur farið frábærlega af stað á nýbyrjuðu tímabili. Á fimmtudaginn næstkomandi verður háður frestaður leikur FRAM – KR og þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi þessa leiks. Með sigri geta okkar menn stimplað sig rækilega inn í toppbaráttua.

Kl. 18.00 á fimmtudaginn næstkomandi verður þér ásamt öðrum FRAMherjum boðið til upphitunar fyrir stórleik FRAM – KR.

    * Grillaðar pyslur fyrir meðlimi FRAMherja.
    * Kók eða svali til að svala þorstanum.
    * Jóhann aðstoðarþjálfari FRAM mætir á svæðið og gefur okkur smá innsýn í hvernig FRAM ætlar að fara inn í þennan leik.
    * FRAM varningur til sölu.
    * Veltibílinn frá SJÓVÁ.

Við  hvetjum FRAMara til að læra textann við  lagið „Ég er kominn heim“ með Óðni Valdimarssyni.

Fjölmennum í dalinn tímalega íklædd BLÁU og sýnum strákunum stuðning í verki.  

Við  vonumst til að sjá þig!

ÁFRAM FRAM, alltaf, allsstaðar !


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l