Content

9.6.2010

FRAM - KR - Upphitun!

Fram mætir KR í frestuðum leik úr 5. umferð á fimmtudagskvöldið kl. 19:15. Þetta er ein þýðingarmesta innbyrðis viðureign Fram og KR í langan tíma: Fram getur komist í toppsæti Deildarinnar með sigri, því Keflavík tapaði á mánudagskvöldið. KR á enn eftir vinna sinn fyrsta leik í Deild í ár.

Undanfarin þrjú ár hafa Fram og KR haldið sig á svipuðum slóðum.  Eftir fallbaráttu 2007 hresstu bæði sig við og náðu Evrópusætum 2008. Í fyrra varð KR í öðru sæti en Fram í því fjórða.

Fram er taplaust, eitt liða Pepsi-Deildarinnar. Fram hefur unnið þrjá leiki og gert tvö jafntefli. Fram hefur unnið báða heimaleiki sína til þessa.  KR-ingar hafa gert 3 jafntefli og tapað tveimur leikjum, verið soldið seinheppnir.  En KR fór þó til Eyja og vann ÍBV í Bikarnum í 32-liða úrslitunum, svo þeim Vesturbæingum hefur ekki verið alls varnað.

Ívar Björnsson og Hjálmar Þórarinsson hafa gert þrjú mörk hvor fyrir Fram. Hjá KR hefur Kjartan Henry Finnbogason gert tvö mörk.

Síðustu viðureignir Fram og KR í Laugardalnum

Fram vann KR 3-0 í fyrra, í leik sem var flýtt vegna Evrópuleikja félaganna.  Hjálmar Þórarinsson gerði tvö mörk og Almarr Ormarsson eitt mark. Fram vann svo aftur um haustið, 1-0 þegar Joe Tillen gerði sigurmarkið í undanúrslitum Bikarsins.

KR-ingar unnu síðast í Laugardalnum 2008, unnu 0-2 með mörkum Guðjóns Baldvinssonar.

Fram og KR gerðu dramatískt jafntefli í 17. umferð 2007, þar sem Ívar Björnsson tryggði Fram stig með marki á síðustu mínútu.  Óskar Örn Hauksson hafði komið KR yfir með glæsimarki skömmu eftir leikhlé.

Fram vann 2004 og jafntefli varð 2003. En aðra deildarleiki liðanna í Laugardalnum 2000-2005 unnu KR-ingar (fjórir sigrar).

Tilfinningin fyrir leik: SPENNA!  Ég skal segja ykkur hvenær Fram var síðast efst þegar að Fram verður næst efst. Það væri eftir KR-ingum að draga fram kanínur úr hatti þetta kvöld og því mikilvægt að standa vaktina frá byrjun! 

Framherjar
Fyrir félaga í FRAMherjum, stuðningsmannaklúbbi FRAM verður sérstök upphitun frá því 18:00 niður á Laugardalsvelli. Nánari upplýsingar þann atburð eru hér.

ALLIR Á VÖLLINN, ÁFRAM FRAM!





« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l