FRAM tapaði sínum fyrsta leik í sumar í gærkvöldi þegar KR kom í
heimsókn. Þorvaldur gerði eina breytingu á liðinu frá síðasta leik en Joe Tillen datt út og í hans stað kom Halldór Hermann.
Fátt var um marktækfæri framan af hjá báðum liðum en á 45. mín tókst Ívar Björnssyni að skora enn eitt markið í sumar en hann hefur verið drjúgur fyrir framan rammann. FRAM fékk þá aukaspyrnu á vallarhelmingi KR, Sam Tillen spyrnti boltanum laglega inn í vítateiginn þar sem Ívar stökk manna hæst og skallaði boltann laglega í markið.
FRAMliðið bætti svo við öðru marki snemma í síðari hálfleik en þá komust þeir í laglega skyndisókn þar sem Hjálmar brunaði upp hægri kantinn og lagði boltann fyrir þar sem Jón Guðni var einn og óvaldaður og skoraði örugglega.
Á þessum tímapunkti héldu margir stuðningsmenn FRAM að þetta væri komið því FRAM vörnin hefur hingað til verið ansi þétt og liðið missir afar sjaldan svona forystu frá sér. En það klikkaði í þetta skiptið því á 10 mínútna kafla sem hófst á 76. mín tókst gestunum í KR að skora þrjú mörk.
Þorvaldur reyndi að breyta gangi leiksins undir lokin með því að setja Tómas Leifsson & Guðmund Magnússon inná en allt kom fyrir ekki. Fyrsta tap FRAM í sumar orðin staðreynd. Það er ansi súrt og pirrandi að tapa þessum leik en með sigri hefði FRAM komist á topp PEPSI deildarinnar. Nú er ekkert annað gera en að horfa fram á veginn og hugsa um næsta leik.
KSÍ skýrsluna má finna hér.
Við minnum svo á að næsti leikur FRAM er gegn Stjörnunni á mánudagskvöldið á Laugardalsvellinum kl. 19:15.