Fram-Stjarnan
Pepsi-deildin, 7. umferð
Laugardalsvöllur
mánudaginn 14. júní kl. 19:15
Á knattspyrnuvellinum sáu Framarar lítið af Stjörnumönnum framan af þessari öld. Garðbæingar ólu þá manninn mest í Næstefstu deild eftir nokkur strandhögg í Efstu Deild á 10. áratug 20. aldar. Nú leikur Stjarnan sitt annað ár í Efstu Deild og Garðbæingar eru bara ansi sprækir.
Stjarnan hefur leikið fjóra heimaleiki en aðeins tvo útileiki. Þeir hafa 9 stig, rétt fyrir aftan Fram, Blika, ÍBV og Valsmenn sem öll hafa 11 stig (þ.e. áður en ÍBV unnu Fylki). Helsta afrek Stjörnunnar til þessa var að vera fyrsta liðið til að vinna Keflavík fyrir viku síðan, með fjórum mörkum gegn engu. Fram hefur unnið tvo heimaleiki en tapaði á fimmtudagskvöldið fyrir KR.
Mörkin
Ívar Björnsson gerði sitt fjórða mark í Pepsi-Deildinni gegn KR, hans 17. fyrir Fram í Efstu Deild. Stjörnumenn hafa skorað liða mest í ár, heil 15 mörk í sex leikjum. Þar fer Halldór Orri Björnsson fremstur með fimm mörk. Halldór Orri hefur alls gert 13 mörk fyrir Stjörnuna á þessu og síðasta keppnistímabili – aðeins
Valdimar Kristófersson og Ingólfur Ingólfsson, sem báðir léku með Fram 1992-1994 hafa skorað meira fyrir Stjörnuna í Efstu Deild.
Fyrri viðureignir
Þetta verður 15. viðureign Fram og Stjörnunnar í Deildakeppninni. Fram hefur unnið átta leiki, Stjarnan fjóra og tvisvar hafa liðin gert jafntefli.
Útkoma Fram gegn Stjörnunni er sem hér segir (Efsta Deild nema annað sé tekið fram)
6 stig: 1997
4 stig: 2006 (1. Deild), 1994
3 stig: 2009, 2000, 1991, 1990
Liðin hafa mæst í sjö keppnistímabil af síðustu tuttugu. Í fjögur skipti af þessum sjö hafa þau skipst á sigrum. Sú var einnig reyndin í fyrra. Fram steinlá á gervigrasinu, eins og fleiri, en hafði 3-2 sigur í Laugardalnum síðsumars. Magnús Björgvinsson kom Stjörnunni yfir en Guðmundur Magnússon jafnaði. Þá svaraði Jóhann Laxdal fyrir Stjörnuna sem var 2-1 yfir í leikhléi. Hjálmar Þórarinsson jafnaði í byrjun síðari hálfleiks og það var svo Jón Guðni Fjóluson sem gerði sigurmark Fram ca. 10 mín fyrir leikslok, 3-2 fyrir Fram.
Fram fékk 4 stig gegn Stjörnunni þegar liðin mættust þar á undan, þ.e. árið 2006 og þurfti þá að fara fram hjá markverði þeirra, sem þá var
Hannes Þór Halldórsson. Hannes Þór lék sérlega vel í leikjum liðanna þetta sumar og var fenginn til liðs við Fram fyrir tímabilið 2007. Fram vann 2-0 í Laugardalnum en 3-3 jafntefli varð í Garðabænum. Í Garðabænum bar það til tíðinda að Arnljótur Davíðsson gerði sitt síðasta mótsmark fyrir Fram, 38 ára að aldri. Þar áður mættust liðin í Efstu Deild árið 2000 og unnu þá útileikinn gegn hvort öðru 2-1.
Tilfinningin fyrir leik
Það hefur oft reynst snúið að spila við Stjörnuna. Það verður líka fróðlegt að sjá hvernig Framliðið kemur til baka eftir fyrsta áfall sumarsins á fimmtudagskvöldið. Það ættu að detta einhver mörk því báðum liðum hefur gengið ágætlega að skora fram til þessa.