15.6.2010
Á toppnum eftir góðan sigur á Stjörnunni!
FRAM smellti sér í fyrsta sæti Pepsi deildarinnar í gærkvöldi er liðið
sigraði Stjörnuna með tveimur mörkum gegn einu.
Fyrir leikinn gerði Þorvaldur þjálfari smá breytiingar á liðinu frá síðasta leik en Jón Orri fór á bekkinn og inn kom Tómas Leifsson. Þar með fór í Jón Guðni aftur í miðvörðinn.
Fyrri hálfleikur var jafn og bæði sóttu og áttu sín færi en það FRAM liðið sem skoraði eina markið í fyrri hálfleik og þar var að verki markaskorarinn funheiti Ívar Björnsson á 34 mín.. Hann fékk boltann inn í vítateig, lyfti honum aðeins upp og smellti honum í hornið með fínni bakfallsspyrnu. Lét það ekkert stoppa sig að hann var með allavega tvo varnarmenn Stjörnunnar í nágrenninu. Glæsilega gert hjá kappanum og án efa eitt af mörkum sumarsins!
Þegar ca. korter var liðið á síðari hálfleik fór á stað atburðarrás sem gjörbreytti leiknum. Fyrst skoraði Tómas Leifsson laglagt mark með skalla eftir hornspyrnu Sam Tillen. Stuttu síðar fékk svo Jón Guðni rautt spjald eftir að hafa brotið á einum leikmanni Stjörnunnar sem var við það að sleppa einn í gegn. Ekki var um vítaspyrnu að ræða þar sem brotið var fyrir utan vítateig. FRAM liðið þurfti því að leika einum manni færri í ca. 30 mínútur. Jón Orri kom þá inn í vörnina í stað Hjálmars.
FRAM liðinu gekk ágætlega það sem eftir var leiks þrátt fyrir að vera einum manni færri. Stjörnumenn voru í sjálfu sér aldrei líklegir til þess að jafna leikinn þrátt fyrir að hafa náð skora eitt mark í lokin.
Heilt yfir þá var þetta fínn heimasigur, reyndar verður vont að vera án Jón Guðna í næsta leik en svona er þetta. Ívar Björnsson er núna kominn með 5 mörk í deildinni og er með markahæstu mönnum þar. Og eins og áður var nefnt þá er liðið komið efsta sæti deildarinnar, reyndar á markamun en þar verður liðið allavega fram á sunnudag.
Næsti leikur FRAM er gegn Keflavík á Njarðtaksvellinum á mánudagskvöldið kl. 19:15.
« Til baka |
Senda á Facebook