Allir sem einn!
Lið FRAM hefur farið frábærlega af stað á nýbyrjuðu tímabili. Á mánudaginn næstkomandi heimsækja strákarnir okkar lið Keflavíkur í sannkölluðum stórleik. Bæði lið eru með 14 stig og því gríðarlega mikilvægt fyrir strákana að ná hagstæðum úrslitum. Til að hjálpa þeim þurfa allir að leggja sitt á vogarskálarnar. Nauðsynlegt er að við stuðningsmenn FRAM fjölmennum til Keflavíkur og hvetjum liðið áfram:
Stefnt er að því að vera með rútuferð til Keflavíkur, ef nægileg þátttaka næst.
Kostnaður í rútuna er 750 kr pr mann og borgist á staðnum í reiðufé.
Áætlað er að rútan fari af stað kl 17.50 frá FRAM-heimilinu og komi til baka um kl 22.00.
Þeir sem hafa áhuga senda tölvupóst á jon@fram.is eða hringja í síma 533-5600.
Fjölmennum í rútuna, sýnum strákunum stuðning í verki og málum Reykjanesbæ BLÁUM ljóma.
Við vonumst til að sjá þig!
ÁFRAM FRAM, alltaf, allsstaðar !