Content

21.6.2010

Fram leikur í Keflavík í kvöld!

Keflavík - Fram
Njarðtaksvöllur Njarðvík
Pepsi-deildin 8. umferð
Mánudaginn 21. júní kl. 19:15


ATH! Leikurinn er leikinn á Njarðtaksvelli í Njarðvík, en ekki á hinum venjulega velli Keflvíkinga.

Fram og Keflavík hafa bæði farið vel af stað og hafa bæði 14 stig, ásamt ÍBV og Val.  Síðan eru Blikar og FH rétt fyrir aftan með 11 stig. Sigurveigarinn fer á toppinn og Fram getur haldið efsta sætinu með jafntefli.

Keflvíkingar unnu fyrstu 5 leikina en töpuðu svo fyrir Stjörnunni á plastinu og gerðu jafntefli heima við Hauka. Fram byrjaði líka vel, tapaði svo fyrir KR en rétti strax úr kútnum með sigri á Stjörnunni.

Mörkin

Ívar Björnsson skoraði gegn Stjörnunni, hans fimmta mark í sumar og hans 20. deildarmark fyrir Fram, þar af 18 í Efstu Deild.  Keflvíkingar hafa gert sjö mörk í sumar og notað þau vel. Keflvíkingar eru sömuleiðis jafnir í markaskorun því sjö leikmenn liðsins hafa gert eitt mark hver!  Keflvíkingar hafa gert eitt mark í Bikarkeppninni (unnu KS/Leiftur 1-0) og viti menn, þar er áttundi leikmaður Keflavíkur með mark.

Heima og úti

Keflvíkingar hafa leikið 3 heimaleiki, unnið tvo og gert eitt jafntefli (þeir hafa skorað fimm gegn þremur). Framarar hafa leikið 3 útileiki, unnið einn og gert tvö jaftefli (þeir hafa skorað sex gegn fimm). Hvort liðið hefur tapað einum leik, Fram heima og Keflvíkingar á útivelli.

Fram vs. Keflavík við toppinn

Framarar og Keflvíkingar hafa sjaldan toppað bæði á svipuðum tímum í knattspyrnusögunni. Fram varð meistari 1962, tveimur árum áður en Keflavík varð fyrst meistari 1964.  Keflvíkingar urðu næst meistarar 1969 og þá urðu Framarar í 6. sæti – sem þá var sætið fyrir ofan fall!

Fram og Keflavík urðu í 2. og 3. sæti á eftir Akranesi 1970, en tóku við keflinu eftir það: Keflavík varð meistari 1971 og 1973 en Fram 1972. Fram varð í 3. sæti 1971 og Keflavík varð í sama sæti 1972. Framarar bundu enda á einvígið 1973 með því að lenda um miðja deild en næstu árin á eftir voru Akranes og Valur einna mest áberandi.

Á velgegnisárum Fram 1985-1991 voru Keflvíkingar sterkir keppinautar Framara fyrri partinn og erfiðir andstæðingar uns liðið féll um deild 1989.  Fram vann bikarúrslitaleik liðanna 1985 (3-1) og bæði voru meðal efstu liða. Árið eftir börðust Fram og Valur um titilinn, með afskiptum Keflvíkinga um miðbik mótsins.  Eftir sigur á Val (1-0) á Hlíðarenda fékk Keflavík Fram í heimsókn og komst í 1-0 snemma leiks.  Eftir það skutu Framarar ótt og títt á markið en hittu fyrir Þorstein Bjarnason markvörð í miklu stuði.  Gummi Torfa setti þó mark 1-1 10 mín fyrir leikslok og bjargaði Fram.  Fram varð meistari um haustið en Keflvíkingar gáfu eftir og létu sér 5. sætið nægja.


Leikmenn beggja liða

Í hópi Fram er einn fyrrum Keflvíkingur að þessu sinni, Austfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson. Paul McShane lék með Fram 2008-2009 en er nú kominn til Keflavíkur og hefur staðið sig vel. Einn fyrrum Framari er í hópi Keflavíkur í ár, og kom sá frá Eyjum fyrir tímabilið 2009, annar Austfjarðajaxl að nafni Bjarni Hólm Aðalsteinsson.

Nokkrir Keflvíkingar léku áður með Fram, þeirra helstir Guðmundur Steinarsson fyrirliði Keflavíkur (2003), Einar Ásbjörn Ólafsson (1987) og svo sjálfur Ragnar Margeirsson (1987 og 1989). Framarar sem farið hafa hina leiðina eru m.a. Hans Mathiesen (2008) og Helgi Björgvinsson (1995).

Síðustu viðureignir

Síðustu tvö ár hafa liðin unnið sitt hvorn leikinn.  Í fyrra tapaði Fram 1-0 í Keflavík snemma sumars en svaraði með 5-0 sigri heima síðsumars.

Árið 2008 unnu liðin útileikina gegn hvort öðru.  Fram sinn fyrsta sigur í Keflavík síðan 1989, 2-1 með mörkum Hjálmars og Almarrs eftir að Keflvíkingar komust í 1-0. Keflvíkingar unnu fyrri leik liðanna í Laugardalnum 2-0 með tveimur mörkum Þórarins Kristjánssonar. Þessi sigur Fram í lokaumferðinni tryggði liðinu sæti í Evrópukeppni, en þess má að síðustu fjögur Framlið sem unnu Deildarleik í Keflavík (2008, 1989, 1987 og 1976) lentu í 2. eða 3. sæti í Deildinni og unnu öll Evrópusæti. Liðið frá 1989 er hér sérflokki og vann bæði í Deild (0-1) og Bikar (3-4). Útileikir gegn Keflavík virðast því e.t.v. mælikvarði á gæði Framliða. En, af meistaraliðum Fram léku aðeins liðin 1972, 1986 og 1988 á Keflavíkurvelli. (Keflvíkingar voru í næstefstu deild 1962 og 1990 en léku fyrst í Efstu Deild 1958).  Aðeins Framliðið 1972 vann í Keflavík, með þremur mörkum gegn tveimur.  Fram gerði 1-1 jafntefli í Keflavík 1986 og 1988.

Árið 2007 höfðu Keflvíkingar 2-1 sigur á Keflavíkurvelli.  Þórarinn Kristjánsson gerði 1 mark en Hjálmar Þórarinsson jafnaði fyrir Fram.  Það var svo Baldur sigurðsson (nú í KR) sem gerði sigurmark Keflvíkinga í síðari hálfleik. Liðin gerðu 4 jafntefli í röð 2000-2004 á Keflavíkurvelli en Keflvíkingar unnu 2-1 árið 2005. Tvö jafnteflanna voru 1-1 en hin tvö voru 2-2 og 3-3.  Liðin mættust ekki 2003 og 2006.




« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • VW
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • VW
  • Landsbanki
  • Sjóvá
  • Errea
  • Coke
  • BootCamp
  • Errea
  • Sjóvá

Leitarv�l