21.6.2010
Jafntefli í Keflavík - Fyrsta Deildarmark Kristjáns H fyrir Fram!
Fram og Keflavík gerðu 1-1 jafntefli í kvöld á Njarðtaksvellinum.
Byrjunarlið Fram var þannig skipað:
Hannes Þór Halldórsson- Hlynur Atli Magnússon, Jón Orri Ólafsson, Kristján Hauksson, Samuel Tillen - Almarr Ormarsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Tómas Leifsson - Ívar Björnsson, Hjálmar Þórarinsson.
Hlynur Atli leysti af Jón Guðna Fjóluson sem var í leikbanni.
Leikurinn var nýhafinn þegar Almarr Ormarsson tók aukaspyrnu sem Kristján skallaði í markið af vítateig.
Þetta er fyrsta mark Kristjáns fyrir Fram síðan hann skoraði fyrir Fram U23 liðið í Bikarnum á sínu fyrsta ári með meistaraflokki 2003.
Framarar voru áfram aðgangsharðir fyrstu mínuturnar en Keflvíkingar komust meira inn í leikinn eftir því sem leið á hálfleikinn. Hannes Varði m.a. aukaspyrnu frá Gumma Steinars. En hinum megin varði Ómar Jóhannson frá Tómasi Leifssyni áður en flautað var til hálfleiks. Forysta Fram í hálfleik var verðskulduð.
Skalli var varinn frá Ívari eftir tæplega korter í seinni hálfleik. Skömmu síðar lét Almarr verja frá sér i ágætis færi. Enn skömmu síðar lét Ívar svo verja frá sér skalla úr dauðafæri.
Keflvíkingar jöfnuðu á 74. mínutu en þá skoraði Magnús Þorsteinsson eftir undirbúning Magnúsar Matthíassonar.
Skömmu eftir að Keflvíkingar jöfnuðu átti Ívar skalla framhjá eftir hornspyrnu.
Tíu mínutum fyrir leikslok gerði Þorvaldur þrefalda skiptingu. Guðmundur Magnússon, Joe Tillen og Kristinn Ingi Halldórsson komu inn á fyrir Tómas Leifsson, Hjálmar Þórarinsson og Ívar Björnsson.
Sex mínutum fyrir leikslok átti Hlynur Atli stangarskot eftir hornspyrnu. Á 88. mínutu var Bjarni Hólm í færi á markteig en varnarmaður Fram komst fyrir hann.
Sam Tillen átti svo tilraun á 90. mínutu en skaut framhjá.
Fleira gerðist ekki og jafntefli niðurstaðan. Framarar hefðu átt að nýta færin betur í þessum leik.
Fram heldur toppsætinu á markamun en hefur 15 stig líkt og Keflavík og Valur. Blikar, FH og ÍBV hafa svo 14 stig. Þetta er því hníf jafnt og spennandi þessa dagana.
« Til baka |
Senda á Facebook