24.6.2010
Bikarinn: Fram mætir Fylki á Árbæjarvelli í kvöld!
Fram mætir Fylki á Fylkisvelli kl. 19:15 í kvöld. Búast má við hörkuleik eins og venjulega milli þessara liða! Sæti í 8-liða úrslitum Bikarsins er í húfi.
Fram í Árbænum
Fram hefur einu sinni áður leikið á Árbæjarvelli í Bikarkeppninni. Árið 1986 lék Fram við Fylki í 16 liða og Gummi Torfa gerði eina markið í 1-0 sigri.
Leikurinn fór fram á möl í Árbænum og Fylkir lék þetta ár í 2. Deild en Fram varð Íslandsmeistari. Í íslenskri knattspyrnu 1986 er sagt að "Framarar lentu í basli gegn Fylki á Mölinni í Árbænum" - Þorsteinn Þorsteinsson bjargaði á línu í lokin frá Fylkismönnum. Þetta er eini bikarleikur liðanna á Árbæjarvelli. Fylkismenn léku þarna í 2. Deild en það var stutt í að þeir sæust í Efstu Deild. Mark Guðmundar Torfasonar var hans 14. fyrir Fram í bikarnum og hans næst síðasta - Guðmundur skoraði gegn KR í næstu umferð í 6-2 sigri en hann gekk til liðs við Beveren í Belgíu um haustið. Það voru Pétur Ormslev og Guðmundur Steinsson sem gerðu flest mörk Fram í Bikarnum þetta sumar, Pétur 4 mörk og Guðmundur S. 3 mörk.
Auk bikarsigursins 1986 hefur Fram aðeins unnið tvisvar á Árbæjarvelli, 3-0 1989 og aftur 3-0 2008. Fram hefur fjórum sinnum gert jafntefli gegn Fylki í Árbæ í 12 viðureignum alls en tapað sex sinnum.
Annars eru bikarleikir Fram og Fylkis skv. ksi.is þessir:
31.7.1974 00:00 Bikarkeppni karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 4-0
5.8.1981 00:00 Bikarkeppni karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 1-0
9.7.1986 00:00 Mjólkurbikar karla Fylkisvöllur Fylkir Fram 0-1
28.9.2002 14:00 Coca-Cola bikar karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 1-3
30.7.2009 19:15 VISA-bikar karla Laugardalsvöllur Fram Fylkir 2-0
Fram tapaði í úrslitunum fyrir Fylki 2002, þegar Andri Fannar Ottóson gerði mark Fram. Í fyrra vann Fram Fylki 2-0 í Bikarnum, aðeins nokkrum dögum eftir 2-1 tap í Deildinni í Árbænum. Sam Tillen og Jón Guðni Fjóluson gerðu mörk Fram á síðustu fimm mín leiksins. Þetta er eina tap Fram fyrir Fylki í Bikarkeppninni. Fram hefur tapað í úrslitaleik eftir þrjá síðustu sigra sína gegn Fylki í Bikarnum, 1981, 1986 og 2009 - fjórum sinnum ef 2002 leikurinn er talinn með.
Fram og Fylkir 2010
Fram hefur þegar leikið einu sinni gegn Fylki í Árbænum 2010, þegar liðin gerðu 2-2 jafntefli í 4. umferð. Síðan þá hafa Fylkismenn hlotið 1 stig í Pepsi-Deildinni en Framarar hafa bætt við 8 stigum.
Fram vann ÍR 2-1 í 32 liða úrslitum og gerði Ívar Björnsson bæði mörkin fyrir Fram. Á meðan fór Fylkir í Garðinn og vann Víði 2-0 með mörkum frá Jóhanni Þórhallssyni og Tómasi Þorsteinssyni.
« Til baka |
Senda á Facebook