Fram lagði Fylki á Árbæjarvelli í gær, 2-0 og komst í 8-liða úrslit Bikarsins. Hjálmar Þórarinsson gerði mark fyrir Fram í fyrri hálfleik. Snemma í síðari hálfleik var Fylkismaður rekinn útaf, ásamt þjálfara liðsins. Fylkismenn léku fast og söfnuðu spjöldum. Einn þeirra var rekinn útaf til viðbótar og Fylkismenn voru níu eftir á vellinum þegar Hjálmar gerði sitt annað mark í leiknum á 89. mínútu.
Þetta var fjórði sigur Fram á Fylki á Árbæjarvelli í Deild og Bikar, en hinir voru 1986 (bikar), 1989 (deild) og 2008 (deild).
Hjálmar hefur nú gert fjögur bikarmörk fyrir Fram, rétt eins og Ívar Björnsson sem gerði mörkin tvö gegn ÍR í 32-liða úrslitunum.
Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitin. Fram fær Val í heimsókn í Laugardalinn 11. eða 12. júlí.
Fram og Valur hafa oft mæst í bikarnum. Valur vann bikarúrslitaleik liðanna 2005 1-0. Fram sló Val út úr bikarnum 2001, með 3-2 sigri á Hlíðarenda. Fram vann 5-2 á Hlíðarenda 1994. Loks eru frægar að endemum viðureignir liðanna 1990 og 1988, þegar Valsmenn höfðu betur eftir framlengingar. Liðin unnu svo sitt hvorn úrslitaleikinn á 8. áratugnum, Fram 1-0 1979 og Valur 2-1 1977.
Sjá um 8-liða úrslitin