Content

14.7.2010

FRAM Open verður þann 23. júlí n.k.

Hið árlega FRAM Open verður haldið föstudaginn 23. júlí n.k. og hefst kl.13:00.
Mótið fer fram á Selsvelli, við Flúðir í Hrunamannahreppi.                                          
Mótið er einkamót FRAMara og er völlurinn því lokaður öðrum frá kl. 13.00 – 18.00.
Í fyrra mættu um 100 kylfingar til leiks  og fóru flestir þeirra hamförum á flötinni.

Leiknar verða 18 holur (punktakeppni karla og kvenna og höggleikur) og verður ræst út samtímis á öllum teigum. Í punktakeppni verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu í karla- og kvennaflokki og í höggleik verða verðlaun veitt fyrir efsta sæti í karla- og kvennaflokki. Ennfremur verða nándarverðlaun og verðlaun fyrir lengsta teighögg á 18. holu. Hámarksforgjöf í karlaflokki er 24 og hámarksforgjöf í kvennaflokki er 28.

Þátttakendur verða að vera mættir kl.12:30 þar sem um samtímaræsingu er að ræða.
Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu, yfir málsverði í golfskálanum að Efra- Seli.
Þátttökugjald er kr. 6.500,- og er kvöldverður ásamt teiggjöf innifalinn.
Skráningar skulu berast til Jóns Sigurðssonar á netfangið jon@fram.is fyrir 20.júlí.
Rita skal „FRAM Open 2010“ í ,,subject" og í póstinum þarf að koma fram nafn og kennitala þáttakanda ásamt símanúmeri og skráðri forgjöf. Ennfremur skal taka fram ef óskað er eftir skráningum saman í holl.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l