Content

26.6.2010

Fram mætir Haukum sunnudag kl 16:00

FRAM - HAUKAR
Pepsi-deildin 9. umferð
Sunnudaginn 27. júní kl. 16:00

Fram mætir Haukum í Efstu Deild í annað sinn.  Síðast mættust liðin í Efstu Deild 1979, en þá voru enn tvö ár í fæðingu elsta leikmanns Fram, Daða Guðmundssonar (1981).

Haukar voru stofnaðir árið 1931, af séra Friðriki Friðrikssyni.  Séra Friðrik hafði árið áður stofnað Reykvískt íþróttafélag, sem einnig heitir eftir ránfugli.  Til þess að hafa félögin sín enn líkari var ákveðið að Haukar skyldu leika í rauðu líkt og hinir reykvísku meðbræður þeirra.  (Eins og eitt rautt félag kennt við ránfugl væri ekki nóg???)

Haukar mættu fyrst til leiks á Íslandsmóti árið 1964, en höfðu í nokkur ár verið sameinaðir í ÍBH ásamt hinu Hafnarfjarðarliðinu (þessu svart hvíta).  Þeir Haukar voru rólegir í tíðinni framan af í neðri hluta Næstefstu Deildar.  Þeir voru þó Frömurum til mikilla vandræða við fyrstu kynni á knattspyrnuvellinum, þegar Fram lék í 1. Deild í fyrsta skipti árið 1966.  Höfðu Haukamenn sigur og jafntefli, og máttu Framarar því sigra Eyjamenn tvisvar til að sigra í A-riðli Deildarinnar, og gerðu það reyndar.  Fram byrjaði það mót illa, en liðið var nokkuð taugaspennt þrátt fyrir að vera í góðri þjálfun (Fram í 80 ár e. Víði Sigurðsson).

Það liðu svo 15 ár áður en liðin mættust aftur.  Haukar náðu sér í Efstudeildarsæti árið 1978 - en það ár var ekkert svarthvítt Hafnarfjarðarlið í Efstu Deild og olli það harmkvælum og heilabrotum.  Fram hafði einn sigur, 3-0 á Laugardalsvellinum, en 1-1 jafntefli varð í leik liðanna í Hafnarfirði.  Haukar urðu neðstir þetta ár en Fram varð í 6. sæti.  1979 er minnst með nokkrum hlýhug af Frömurum, en liðið varð þá Bikarmeistari eftir 1-0 sigur á Val í úrslitaleiknum.

Liðin mættust næst árið 2003 í Bikarkeppni KSÍ, þegar Fram vann 4-2 eftir framlengingu á Laugardalsvellinum.

Haukar léku í 1. Deild 2002-2008, sem er lengsta dvöl þeirra þar sl. rúma tvo áratugi.  Það var á þeim slóðum sem liðin mættust þrisvar árið 2006, einu sinni í Bikarnum og tvisvar í Deild. Fram vann þessa leiki örugglega, 5-1, 3-0 og 3-1, en beið svo lægri hlut í Bikarnum árið eftir.  Leikurinn 2007 fór 2-2 í venjulegum leiktíma og gerðu Igor Pesic og Alexander Steen mörk Fram.  Leikurinn fór í vítakeppni og þar höfðu Haukar betur.

Þrátt fyrir fátíð kynni á knattspyrnuvellinum þekkjast þessi tvö félög vel sökum handboltans.  Ekki eru liðnar margar vikur síðan Haukar urðu Íslandsmeistari í handbolta karla.  Þá hafa nokkrir herramenn leikið með báðum liðum sl. áratugi.  Þeir eru m.a. Jón Pétursson, Kristinn R. Jónsson (þjálfari Fram 2001-2003 og leikmaður til fjöld ára), Brynjar Jóhannesson, Edilon Hreinsson og Jón Gunnar Gunnarsson.  Tveir núverandi leikmenn Hauka eru fyrrum leikmenn Fram, Daníel Einarsson lék með Fram 2007 og Þórhallur Dan Jóhannsson árið 2005.

Fram og Haukar 2010

Framarar hafa 15 stig og hafa fengið níu þeirra heima fyrir.  Fram hefur unnið þrjá heimaleiki en tapað einum.
Haukar hafa 3 stig og hafa fengið þau öll á útivöllum:  2-2 jaftefli gegn KR, 2-2 jafntefli gegn Stjörnunni og 1-1 jafntefli gegn Keflavík.  Þeir hafa skorað 9 mörk, sum hver mjög skemmtilega, en líka fengið á sig 19 mörk, flest allra liða í deildinni.  Haukar hafa aðeins tapað einum útileik, 3-0 gegn Selfossi.

Mörkin

Ívar er með 5 mörk fyrir Fram í Deild og Hjálmar þrjú - báðir hafa gert 2 mörk í bikarnum.
Sam Mantom og Arnar Gunnlaugsson hafa gert 2 mörk hvor fyrir Hauka.  Arnar hefur auk þess lagt upp mörk en hann hefur verið Fram hættulegur í gegnum tíðina.

Tilfinningin fyrir leik


Haukar eru e.t.v. sýnd veiði en ekki gefin og hér þarf einbeitingar og fagmennsku við.  Þolinmæði er dyggð.

Fram efst gegn botnliðinu


Fram mætti síðast botnliði sem topplið í Efstu Deild 1991.  Þann 14. ágúst kom Víðir Garði í heimsókn í Laugardalinn.  Fram komst yfir á 25. mínútu með marki Antons B. Markússonar.  Víðismenn börðust eins og ljón, enda höfðu þeir slegið Fram út úr bikarnum á sama velli nokkru áður.  En á lokamínútunum gerði Jón Erling Ragnarsson 2 mörk og Steinar Guðgeirsson kom með eitt af sínum þrumuskotum, 4-0 fyrir Fram.  Þolinmæði var dyggð.




« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l