Content

28.6.2010

FRAM strákrar stóðu sig vel á Shellmótinu í Eyjum um helgina.

6. flokkur karla tók um helgina þátt í hinu árlega og ómissandi Shellmóti og eins og alltaf var í nógu að snúast og ótrúlega gaman.

Það gekk frábærlega vel hjá Frömurum í ár og komum við heim með 2 bikara, eitt silfursæti og 2 brons. Frábær árangur hjá öllum okkar strákum sem börðust eins og ljón alla helgina og voru glaðir og kátir sama hvernig fór í leikjunum.

Lið 2 og 4 urðu í fyrsta sæti í sínum riðlum (Álseyjarbikarinn og Eldfellsbikarinn)

Lið 5 varð í 2 sæti eftir 1-1 jafntefli (Stjarnan skoraði á undan) (Ystaklettsbikarinn)

Lið 1 og 3 urðu í 3 sæti í sínum riðlum (Shellmótsbikarinn og Suðureyjarbikarinn)

Lið 6 var í 5 sæti í sínum riðli (Ystaklettsbikarinn)

Viktor Gísli var valinn í Landsliðið fyrir Landsleikinn á mótinu og skoraði hann mark í þeim leik.

Tryggvi Snær og Stefán Árni Geirssynir voru síðan báðir valdir í Shellmótslið Shellmótsins 2010 og vorum við eina liðið með tvo leikmenn í því liði.

Frábært hjá ykkur strákar.

Ég læt fylgja 3 myndir.

 


Kv. Kata



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l