Grunnskólamót Höfðuborga Norðurlandanna fór fram í Helsinki 24.-28.maí síðastliðinn. Fyrir hönd Reykjavíkur tóku þátt í mótinu 41 ungmenni á aldrinum 12-14 ára auk þjálfara og fararstjóra. Hópurinn stóð sig vel í Finnlandi, innan vallar sem utan.
Við FRAMarar áttum að sjálfsögðu okkar fulltrúa en Ragnar Kjartansson var valinn í knattspyrnuliðið sem stóð sig vel á mótinu og endaði í 3 sæti.
En þetta er ekki allt því ÍBR sendi nú um helgina hóp ungmenna til Barain til að keppa fyrir hönd Reykjavíkur í handbolta. Þar komu við FRAMarar sterkir inn því FRAM á 4 leikmenn í þessum hópi þeir
Benedikt Bjarnason, Sigurður Örn Þorsteinsson, Gísli Gíslason og Ragnar Kjartansson voru valdir og þjálfari hópsins er Haraldur Þorvarðarson þjálfari 4. fl. FRAM.
Ragnar var því valinn í úrvalslið Reykjavíkur í bæði handbolta og fótbolta sem verður að teljast frábært.
Drengirnir eru þó ekki hættir því um leið og þeir koma heim frá Barain þá halda þeir á Partille-cup í Svíþjóð með FRAM svo það er nóg að gera hjá þessu efnilegu drengjum.
Til hamingjum með þetta strákar.