Fram-Valur
Pepsi-deildin 10. umferð
Laugardalsvöllur
mánudaginn 5. júlí, kl. 20:00
ATH leikurinn er kl. 20:00 skv. ksi.is
Leikurinn er fjórtánda deildarviðureign hinna gömlu keppinauta á þessari öld. Báðir hikstuðu í síðustu umferð en hafa engu að síður átt ágætis gengi að fagna í sumar. Valsmenn töpuðu fyrir Keflavík 0-2 og Fram gerði 0-0 jafntefli við Hauka. Toppslagurinn er harður í ár og mikilvægt að komast aftur á sigurbraut á þessum tímapunkti.
Fyrri viðureignir
Valsmenn unnu báða leikina 2001, liðin skiptust á heimasigrum 2003 og 2005, og Valsmenn náðu svo í fjögur stig 2007, þegar þeir urðu Íslandsmeistarar. Síðan skiptust liðin á heimasigrum 2008 eins og svo oft áður. Í fyrra brá svo við að liðin skiptust á útisigrum gegn hvort öðru. Þetta er í þriðja skiptið sem slíkt gerist hjá Fram og Val eftir að Valsmenn hófu að leika á Hlíðarenda 1984. Liðin skiptust á útisigrum síðast 1991 og 1992.
Valur vann 2-1 í Laugardalnum 2009 þegar Paul McShane kom Fram yfir en Marel Baldvinsson og Bjarni Ólafur Eiríksson svöruðu fyrir Val. Enginn þessara leikmann leika með liðunum nú ári síðar. Paul er farinn til Keflavíkur, Marel í Stjörnuna og Bjarni Ólafur til Noregs. Fram svaraði með 2-1 sigri á Vodafone vellinum. Helgi Sig kom Val yfir en Joe Tillen jafnaði fyrir Fram. Það var svo Almarr Ormarrsson sem gerði sigurmark Fram, rétt eins og Þorvaldur föðurbróðir gerði 1991 og Ormarr faðir hans árið 1988. Helgi er kominn í Víking en Almarr og Joe eru enn í Fram.
Valsmenn unnu leik liðanna á HlíðarendaVodafone vellinum 2008 2-0 með tveimur mörkum Pálma Rafns Pálmasonar, sem fór svo bara til Noregs. Fram svaraði með 2-1 í Laugardalnum í 21. umferð. Ívar Björnsson og Joe Tillen gerðu mörk Fram en Baldur I. Aðalsteinsson gerði mark Vals.
Menn beggja
Í hópi Vals eru fyrrum Framarar, þeir Reynir Leósson (Fram 2007-2008) og Þórir Guðjónsson sem skipti í Val fyrir tímabilið.
Mörkin
Ívar Björnsson hefur gert 5 mörk fyrir Fram og Hjálmar Þórarinsson þrjú mörk. Hjá Val hefur Danni König skorað mest eða fjögur mörk.
Tilfinningin fyrir leik
Fram-Valur. Orrustan um Austurborgina. Að duga eða drepast fyrir báða og fyrsti toppslagur þessara tveggja í langan tíma. Bikarleikur handan við hornið svo þetta getur orðið afar sögulegt.