Partille Cup 2010 5 júli til 12 júli
Það var glæsilegur hópur 105 ungmenna úr FRAM sem vaknaði um miðja nótt og hélt á Patille-cup í Svíþjóð snemma í morgun. Partillecup er stæðsta handboltamót sem haldið er í heiminum ára hvert og er áætlað að um 19.000 þúsund krakkar taki þátt í mótinu í ár. Handknattleiksdeild FRAM hefur haft þá reglu í yfir 20 ár að fara með 5 fl. karla og kvenna á þetta stóra mót og ríkir mikil spenna fyrir ferðinni í ár. Eins og áður sagði eru þátttakendur núna rétt rúmlega 100 og með fararstjórum og þjálfurum slagar hópurinn í 130 manns. Það á því að mála Gautaborg bláa dagana sem mótið fer fram en mótið stendur dagana 6-11 júlí. Mikil og þétt dagskrá bíður krakkana en auk handbolta þá verður farið í Liseberg, vatnsleikjagarð, auk hefðbundina atriðar eins opnunarhátið, diskótek og lokahátið sem báðar eru sérlega glæsilegar og mikil skemmtun.
Það eru því spenntir FRAMarar sem æfa handbolta nú yfir há sumarið og geta ekki beðið eftir því að reyna sig við leikmenn allstaðar að úr heiminum.
Þeir sem vilja fylgjast með mótinu er bent á heimasíðu mótsins www.partillecup.com
Eins eigum við von á því að pislar um mótið verði birtir á heimasíðu FRAM www.fram.is.
Hópurinn heldur líka úti bloggsíðu og er hægt að fylgjast með krökkunum á henni en slóðin er http://partilleframarar.blog.is
Knattspyrnufélagið FRAM óskar krökkum góðs gengis og ekki síst góðar skemmtunar í Gautarborg.
ÁFRAM FRAM