Content

6.7.2010

Jafntefli í Laugardalnum

FRAM & Valur mættust í gærkvöldi í ansi fjörugum leik í Pepsí deildinni sem endaði með jafntefli, 2-2 eftir að gestirnir höfðu náð tveggja marka forystu.

Fyrri hálfleikur leiksins var að mestu í eign gestanna og má kannski segja að leikmenn FRAM hafi verið stálheppnir að komast inn í búningsklefann í hálfleik einungis einu marki undir. Valsmenn byrjuðu leikinn af miklum krafti skoruðu fyrsta mark leiksins á 9. mínútu en vörnin svaf þar illilega á verðinum og einn leikmaður Vals skoraði með laglegum skalla eftir fyrigjöf frá hægri. Þremur mínútum síðar braut Jón Gunnar svo á einum leikmanni Vals inn í vítateig og víti dæmt. Hannes Þór gerði sér lítið fyrir og sýndi þar topp markvörslu er hann varði vítið.

Þegar um hálftími var liðinn af leiknum fengu Valsmenn svo aukaspyrnu á miðjum vallahelmingi FRAM. Hár bolti barst inn í teiginn og aftur klikkaði dekkninginn eitthvað því þar fékk tókst einum leikmanni Vals að komast í boltann og skalla í netið. Staðan því orðin 0-2 og útlitið dökkt. En þessi staða er svosem ekkert ný hjá FRAMliðinu því á 45. mín fékk liðið hornspynu sem Sam Tillen tók og Jón Guðni skallaði í netið í tveimur tilraunum eftir að sú fyrri var varinn.

Síðari hálfleikur var svo eign FRAM, liðið sótti og sótti og uppskar eitt mark og 1 rautt spjald ... markið skoraði Sam Tillen á 75. mínútu beint úr aukaspyrnu og rauða spjaldið fékk Jón Guðni í kjölfarið á markinu fyrir eitthvað sem við FRAMarar skiljum hvorki upp né niður í! Því miður lendir Jón Guðni líklegast í tveggja leikja banni útaf þessu spjaldi. FRAMliðið spilaði því einum leikmanni færri síðasta korterið og var hársbreidd frá því að stela öllum þremur stigunum en Joe Tillen fékk sannkallað dauðafæri í lokin sem markvörður Vals varði vel.

Það er því ekki hægt að segja annað en að þeir tólf hundruð áhorfendur sem mættu á leikinn í gær fengu að sjá frábæran leik, hörku Reykjavíkurslag sem stóð svo sannarlega undir nafni. Þeir drengir í Val mæta svo aftur í Laugardalinn eftir 6 daga þegar liðin mætast í VISA bikarnum.

Næsti FRAM er svo gegn FH í Kaplakrikanum á fimmtudagskvöld.

KSÍ skýrsluna má finna hér.

FRAM TV er með nokkur viðtöl eftir leikinn en þau má finna hér.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l