FH - FRAM
Pepsi-deildin 11. umferð
Kaplakrikavöllur
Fimmtudagurinn 8. júlí kl. 20:00
Síðustu viðureignir
FH-ingar nutu þess vafasama heiðurs að vera eina liðið sem vann Fram í báðum leikjum árið 2009. Fram tapaði 1-2 í Kaplakrika og 0-2 í Laugardalnum. Báðir leikirnir fóru fram fyrri part sumars, þegar FH var í sem mestu stuði en lítið gekk hjá Framliðinu.
Liðin unnu sitt hvorn leikinn 2008. Fram vann heimaleikinn 4-1 en FH vann í Kaplakrika 2-1. Sigur Fram 2008 var eini deildasigur Fram á FH síðan síðan 2003, en það ár vann Fram báða leiki liðanna (1-0 og 3-2). Fram vann einu viðureign liðanna í ár, 1-0 í Lengjubikarnum í vor með marki Guðmundar Magnússonar.
Í síðustu fimm heimsóknum sínum í Kaplakrika (2004, 2005, 2007, 2008 og 2009) hefur Fram aðeins fengið 1 stig, það var í 3-3 jafntefli árið 2007.
Tímabilið 2010
Það hafa ekki verið alveg sömu lætin í FH í ár og oft áður. Engu að síður eru meistararnir eitt sterkasta lið Pepsi-deildar um þessar mundir. FH gerði 1-1 jafntefli í Keflavík sl. sunnudagskvöld en Fram gerði 2-2 jafntefli við Val í sömu umferð. Fram er þremur stigum á eftir toppliði Blika en FH-ingar eru þar tveimur stigum á eftir.
Heima og úti
FH hefur unnið tvo heimaleiki en tapað tveimur. FH hefur lagt Grindavík 2-1 og KR 3-2 en tapað fyrir ÍBV 2-3 og Stjörnunni 1-3. Nóg er skorað í Krikanum.
Fram hefur náð í þrjú útijafntefli, 2-2 gegn Blikum og Fylki, og 1-1 í Keflavík. Eini útisigur Framara til þessa var á Selfossi, 1-2.
Mörkin
Þrír FH-ingar hafa skorað hvað mest í sumar og hafa gert tíu af 16 mörkum FH. Atli Viðar Björnsson er með fjögur mörk, Ólafur Páll Snorrason og Matthías Vilhjálmsson hafa gert þrjú mörk hver. Ólafur Páll er sérlega heitur að undanförnu og hefur skorað í nokkrum leikjum í röð.
Ívar Björnsson og Hjálmar Þórarinson hafa gert átta af 17 mörkum Framara. Þeir félagar eru þó án marka í síðustu tveimur leikjum. Hjálmar skoraði síðast í bikarleiknum gegn Fylki en Ívar síðast gegn Stjörnunni 14. júní. Það eru Jón Guðni Fjóluson, Sam Tillen og Kristján Hauksson sem hafa gert síðustu þrjú mörk Fram, þ.e. gegn Val og Keflavík.
Bönn
Jón Guðni Fjóluson er í tveggja leikja banni og tekur fyrri leikinn út gegn FH.
Hjá FH var Pétur Viðarsson dæmdur í bann vegna fjögurra gulra spjalda á þriðjudag en bannið tekur sennilega ekki gildi fyrr en á föstudaginn 9. júlí.