Content

12.7.2010

VISA Bikarinn: FRAM - Valur í kvöld kl. 19:15

FRAM & Valur mætast í 8 liða úrslitum VISA bikarsins í kvöld. Leikurinn fer fram á Laugardalsvellinum og hefst kl. 19:15.

Þessi eru að mætast öðru sinni á einni viku en þau gerðu 2-2 jafntefli í deildinni á mánudaginn var. Á fimmtudaginn steinlá Fram í Hafnarfirði fyrir FH 1-4 á meðan Valsmenn gerðu 2-2 jafntefli við Hauka.

Þeir Kristján Hauksson & Jón Guðni Fjóluson verða báðir fjarri góðu gamni í kvöld því þeir eru báðir í leikbanni. Það kemur því væntanlega í hlut þeirra Jóns Orra & Hlyns Atla að leysa þá félaga af.

Bikarsaga Fram og Vals

Fram og Valur mættust síðast í bikarnum í úrslitaleik 2005 þar sem Valsmenn fögnuðu 1-0 sigri.  Þar áður mættust liðin á Hlíðarenda 2001 og þá unnu Framarar 3-2 eftir að hafa tapað deildarleiknum stuttu áður á sama stað.  Þar áður vann Fram á Hlíðarenda 5-2 árið 1994.

Oft er sagt að þegar lið mætast í Deild og Bikar í sömu viku vinni liðin sitt hvorn leikinn. Með Fram og Val er þetta oft reyndin.  Áður er nefnt árið 2001 en frægustu dæmin eru árin 1988 og 1990.  Bæði árin urðu Framarar Íslandsmeistarar en Valsmenn bikarmeistarar.  Bæði árin drógust liðin saman í bikarnum og mættust í Deildinni sömu viku.  Árið 1988 vann Fram 1-0 á Hlíðarenda í Deildinni en tapaði 3-1 nokkrum dögum síðar í Bikarnum.  Árið 1990 mættust liðin í hörku bikarleik sem var framlengdur eftir 2-2 í venjulegum leiktíma.  Valsmenn unnu svo í vítakeppni.  En nokkrum dögum síðar mætti Fram aftur á Hlíðarenda og vann 1-2. Engu slíku er til að dreifa í ár, enda gerðu liðin jafntefli fyrir viku.

Þegar Framarar slógu Val út úr bikarnum 1994 og 2001 duttu þeir út á næstu hindrum, sem var Þór 1994 (1-4 á Akureyri) og ÍA 2001 (vítakeppni eftir 0-0 eftir framl.).  Valsmenn hafa hins vegar orðið bikarmeistarar í síðustu 3 skipti sem þeir hafa mætt Fram í Bikarnum (2005, 1990, og 1988).  Þeir urðu svo bikarmeistarar án þess að mæta Fram 1991 og 1992.  Fram varð síðast bikarmeistari 1989, 1987 og 1985, í öll skiptin án þess að mæta Val.

Liðin hafa þrisvar mæst í úrslitaleik Bikarsins. Valsmenn unnu 2-1 árið 1977 og 1-0 árið 2005. Framarar unnu 1-0 1979.

Leiðin í leikinn

Fram vann ÍR í 32-liða úrslitum 2-1 og þar næst Fylki í 16-liða úrslitum 2-0.  Ívar Björnsson gerði bæði mörkin gegn ÍR og Hjálmar Þórarinsson bæði mörkin gegn Fylki.

Valur vann Aftureldingu 2-1 og Víking 3-1 (eftir framlengingu) til að komast áfram í bikarnum.  Fjórir leikmenn Vals hafa gert mörkin fimm, þar af hefur Viktor Unnar Illugason gert tvö mörk.

Þetta verður án efa örugglega Reykjavíkuslagur af bestu gerð!

Við hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til þess að fjölmenna á Laugardalsvöllinn og láta heyra vel í sér.

ÁFRAM FRAM!



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l