FRAM er komið í 4 liða úrslit VISA bikarsins eftir frábæran 3-1 sigur á
Valsmönnum. Leikurinn var tíðindalítill framan af en á 10 minútna kafla í upphafi síðari hálfleiks skoraði FRAMliðið þrjú mörk og gerði út um leikinn.
Þorvaldur þjálfari gerði nokkrar breytingar á liðinu fyrir þennan leik þar sem Kristján Hauks & Jón Guðni voru í leikbanni. Þeir Jón Orri & Hlynur Atli komu inn í miðvarðastöðurnar. Og Joe Tillen var á kantinum og svo var Almarr kominn aftur í byrjunarliðið.
Það var Halldór Hermann Jónsson sem skoraði fyrsta mark leiksins á 50. mínútu en hann fékk boltann á miðsvæðinu, lék framhjá nokkrum Valsmönnum og smellti boltanum í fjærhornið. Einstaklega vel gert hjá kappanum.
Svo var það Tómas Leifsson sem skoraði næsta mark 5 mínútum síðar en Joe Tillen átti þá frábæra fasta fyrirgjöf sem Tómas afgreiddi frábærlega. Og að lokum var það Joe Tillen sem skoraði þriðja markið á 58. mín en hann fylgdi þá eftir skoti Almarrs sem hafði verið varið.
Gestirnir í Val svöruðu aðeins fyrir sig með marki á 65. mínútu en nær komust þeir ekki.
Það var gaman að sjá þá Jón Orra & Hlyn Atla saman í vörninni í gærkvöldi. Þeir drengir stóðu vaktina af mikilli prýði og stigu fá feilspor. Joe Tillen var einnig öflugur lagði upp eitt mark og skoraði annað. Og fór ansi illa með hægri bakvörð Valsmanna á köflum.
Leikskýrsluna á KSÍ vefnum má finna hérna.
Það verður dregið í 4 liða úrslit VISA bikarsins á hádegi í dag og þá kemur í ljós hverjir mótherjar okkar verða í næstu umferð.