Content

16.7.2010

Fram fer til Vestmannaeyja laugardag!

ÍBV-FRAM
Hásteinsvöllur, Vestmannaeyjum
Laugardaginn 17. júlí kl. 14:00


Fram heimsækir Vestmannaeyjar á laugardag.  Fram hefur dalað að undanförnu og hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum, gert tvö jafntefli og legið illa fyrir FH.  Fram komst þó undanúrslit Bikarkeppninnar með því að leggja Val að velli 3-1 á mánudaginn var.  En nú er það næsti leikur og hann er af dýrari gerðinni.

Eyjamenn þóttu taka stórt upp í sig í vor, þeir sögðust stefna á efri hlutann.  Fréttaritari var svo brattur að hafa nokkra trú þeim orðum Eyjamanna og spáði þeim 6. sæti.  Frammistaða ÍBV hefur gert það að svartsýnisspá! - ÍBV hefur farið á kostum og er efst ásamt Blikum með 23 stig. Þeirra helsta viðbót í ár er Tryggði Guðmundsson sem sneri heim eftir langa dvöl í FH. Eins hafa Eyjamenn verið heppnir með útlendinga, þeirra helst James uirst lánsmaður frá Portsmouth.
 
Þjálfari ÍBV er jaxl í bak og fyrir, en þar fer gamli varnar-jaxlinn Heimir Hallgrímsson, en svo römm er jaxltign hans að hann er tannlæknir að mennt.  Heimir tók við liðinu eftir fallið 2006, kom því upp og hélt því nokkuð örugglega uppi í fyrra.  Óneitanlega er hann þjálfari mótsins það sem af er.


Mörkin

Eyjamenn hafa gert 18 mörk í Deildinni eins og Framarar.  Það er vörn ÍBV sem skilur á milli því ÍBV hefur fengið á sig níu mörk, fæst allra í deildinni.  Framvörnin hefur lekið 16 mörkum í 11 leikjum.

Ívar Björnsson hefur gert fimm mörk fyrir Fram og Hjálmar Þ. gert þrenn mörk. Í bikarleiknum gegn Val gerðu miðjumenn liðsins mörkin, þeir Joe Tillen, Halldór Hermann og Tómas Leifsson. 

Hjá ÍBV hefur Tryggvi Guðmundsson gert fimm mörk. Denis Sytnik og Andri Ólafsson hafa gert þrjú mörk hvor.

Bönn

Fram endurheimtir Jón Guðna Fjóluson og Kristján Hauksson úr leikbönnum.
James Hurst og Andri Ólafsson eru í banni hjá ÍBV vegna fjögurra gulra spjalda.  

Heima og úti


Fram tapaði sínum fyrsta útileik í sumar gegn FH, 1-4 í síðustu umferð.  Mönnum virðist Fram á niðurleið eftir góða byrjun.  Fram hefur unnið einn útileik en gert þrjú jafntefli.

Eyjamenn hafa aðeins leikið fjóra heimaleiki í 11 umferðum.  Þeir hafa unnið þrjá þeirra og gert eitt jafntefli.  Hásteinsvöllur er þekktur sem einn erfiðasti útivöllur á Íslandi.  Í deildinni í ár eru aðeins ÍBV og Keflavík taplaus heima.

Fyrri viðureignir

Fram vann fyrri leik liðanna í Reykjavík, 2-0.  Eyjamenn hafa aðeins tapað einum leik til viðbótar, gegn KR í Vesturbænum.

Fram vann ÍBV síðast á Hásteinsvelli 2002, 1-0 með marki Ágústs Gylfasonar. Árið áður vann Fram einn sinn fræknasta sigur á Hásteinsvelli, þegar Ásmundur Arnarsson gerði þrennu í 3-1 sigri Fram.

Fram gerði jafntefli þar 1-1 í fyrra, þegar Ívar Björnsson jafnaði eftir Ajay Leitch-Smith kom ÍBV yfir.

Þar áður lék Fram á Hásteinsvelli 2003-2005, gerði 1-1 jafntefli 2004 en tapaði hin árin, 0-2 árið 2005 og 0-5 árið 2003.





« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l