Fram – Breiðablik
Laugardalsvöllur
Pepsi-Deildin 13. umferð
sunnudaginn 25. júlí kl. 19:15
Ólíkt hafast liðin að að þessu sinni. Blikum gengur allt í haginn og ættu að vera öruggir með a.m.k. Evrópusæti. en það hefur gengið illa hjá Fram að undanförnu. Blikar eru efstir ásamt ÍBV með 26 stig, þeir hafa verið feikna öflugir. Framarar eru í sjötta sæti með 17 stig. Blikar hafa verið öllu heitari og eiga m.a. ungan mann sem hefur skorað grimmt sl. þrjú ár. Sá heitir Alfreð Finnbogason og er núna markahæsti leikmaður deildarinnar með níu mörk í tólf leikjum.
Leikir Fram og Breiðabliks eru alltaf spennandi. Liðin mættust ekki 2002-2006, en frá 2007 hafa liðin mæst sjö sinnum í deild og einu sinni í bikar. Fram hefur unnið tvo jafna leiki, Blikar unnu 3-0 2008 og í lokaumferðinni 2007 varð 2-2 jafntefli þar sem Fram eignaðist sinn fyrsta markakóng síðan 1987 – sá er nú skorandi fyrir HK í Kópavoginum. Núna ber svo við að liðin hafa gert þrjú jafntefli í röð í deildinni og fjögur ef bikarinn er talinn með, nú og svo fimm ef deildabikarinn í vor er talinn með.
Síðustu heimaleikir Fram gegn Blikum
Fram vann 1-0 árið 2007 með marki Jónasar Grana Garðarssonar
Fram vann Blika 2-1 2008. Mörk Fram gerðu Heiðar Geir Júlíusson og Ívar Björnsson, en mark Blika gerði Guðmundur Kristjánsson.
Liðin gerðu 1-1 jafntefli í Laugardalnum 2009, í leik sem Fram hefði þó átt að klára miðað við færi. Mark Fram gerði Hjálmar Þórarinsson en Kári Ársæls svaraði fyrir Blika.
Síðustu leikir liðanna
Fram vann síðast deildarleik gegn Stjörnunni 14. júní, 2-1 en er án sigurs í fimm deildarleikjum eftir það. Sé Bikarinn talinn með vann Fram Val 3-1 12. júlí.
Á sama tíma hafa Blikar unnið fimm leiki í röð í deildinni, töpuðu síðast sama dag og Fram vann síðast, 14. júlí (2-3 gegn Grindavík).
Heima og úti
Fram hefur unnið þrjá heimaleiki af sex. Fram hefur gert jafntefli við Val og Hauka en tapað fyrir KR.
Blikar hafa verið sterkir á útivelli. Þeir hafa unnið fimm af sex útileikjum og gert eitt jafntefli. Síðast unnu Blikar í Keflavík, 2-0 sannfærandi. Í millitíðinni luku þeir keppni í Evrópu.