FRAM sigraði Breiðablik með þremur mörkum gegn einu í gærkvöldi er liðin mættust á Laugardalsvellinum.
Það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur og áttu bæði skot í stöng og slá á fyrstu 5 mínútum leiksins en eftir það tóku leikmenn FRAM öll völd á vellinum. Á 8. mínútu fékk FRAM aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig gestanna, í stað þess að dæla boltanum inn í teiginn var tekinn stutt sending á Joe Tillen sem lék upp að endalínu og gaf fyrir, þar var Hjálmar mættur og skoraði örugglega. Korteri síðar spólaði Almarr sig hreinlega í gegnum varnarmenn gestanna og kom boltanum í netið af miklu harðfylgi. Það virtist vera brotið á Almarri en dómarinn beitti hagnaðarreglunni og markið fékk að standa. Það var svo Jón Guðni sem skoraði þriðja markið á lokamínútum fyrri hálfleiks beint úr aukaspyrnu, einstaklega laglegt mark. Fyrri hálfleikinn var hreinlega frábær skemmtun hjá FRAM!
Gestirnir í Breiðablik mættur grimmir til leiks í síðari hálfleik og ætluðu að komast aftur inn í leikinn gerðu meðal annars tvöfalda skiptingu strax í byrjun síðari hálfleiks en lítið gekk hjá þeim, vörn FRAM var mjög öflug í dag og Hannes Þór varði nokkrum sinnum feiknavel. Breiðablik tókst klóra aðeins í bakkann á 72. mínútu en þá áttu þeir skot að marki sem var varið og fylgdu því eftir en nær komust þeir ekki og leikurinn fjaraði út á lokamínútunum.
FRAMliðið var einstaklega öflugt í dag, menn unnu vel í vörn og áttu nokkrar fantagóðar sóknir þess á milli.
KSÍ skýrslan er hér.
Næsti leikur liðsins er á fimmtudagskvöldið kl. 19:15 en þá eru það undanúrslit VISA bikarsins sem taka við, mótherjinn þar er KR á heimavelli þeirra. Við hvetjum alla stuðningsmenn FRAM til þess að mæta og styðja strákana okkar!
Svo er kominn þónokkur viðtöl á FRAMtv á youtube.com en þau má finna með því að smella hér.