Content

28.7.2010

Bikarslagur í Vesturbæ fimmtudag!


KR-FRAM
Undanúrslit VISA-bikarsins
Frostaskjól
fimmtudaginn 29. júlí kl. 19:15

Síðasti leikur Fram

Hjálmar Þórarinsson gerði sitt 24. mark fyrir Fram í Efstu Deild gegn Blikum.  Hann er nú jafn Helga Sigurðssyni með 24 mörk í 12.-13. sæti yfir markahæstu Framara í Efstu Deild. En Helgi gerði sex mörk í Bikarnum fyrir Fram á meðan Hjálmar er með fjögur.  Þá gerði Helgi 13 mörk í Næstefstu Deild fyrir Fram árið 2006.

Fram vann Breiðablik heima í þriðja skiptið á fjórum árum í Deildinni.  Liðin gerðu jafntefli 2009 en Fram vann 2007, 2008 og 2010.  Síðustu innbyrðis leikir á undan þessum leikjum voru 2001.  Blikar hafa einu sinni unnið Fram frá 2007 í Deildinni en aðrir leikir hafa endað með jafntefli (eða framlengingum og vító...).

Fyrri viðureignir Fram og KR...


Fram hefur tapað á KR-vellinum í síðustu áttta heimsóknum í röð í deild (2009, 2008, 2007, 2005, 2004, 2003, 2002, 2001).  Fram vann síðast í Frostaskjóli (2-1) árið 2000 í Deildinni en vann þó 1-0 sigur í Bikarnum árið 2002.  KR-ingar unnu bikarleik liðanna árið 2003 2-0 í Frostaskjóli.
 
Fram vann KR 1-0 í undanúrslitunum í fyrra, en þá var leikið á Laugardalsvellinum. Framarar voru á undan upp úr hattinum í það skiptið.  Joe Tillen gerði markið fyrir Fram.

Leið liðanna í leikinn

Fram vann ÍR í 32-liða úrslitum 2-1 og þar næst Fylki í 16-liða úrslitum 2-0.  Ívar Björnsson gerði bæði mörkin gegn ÍR og Hjálmar Þórarinsson bæði mörkin gegn Fylki. Í 8-liða úrslitunum unnu Framarar Val 3-1 með mörkum Joe Tillen, Halldórs Hermanns Jónssonar og Tómasar Leifssonar.

Halldór Hermann Jónsson varð 91. Framarinn til að skora í Bikarkeppninni með marki sínu gegn Val á 50. mínútu leiksins í 8-liða úrslitunum.  Fjórum mínútum síðar varð Tómas Leifsson 92. Framarinn til að skora í Bikarkeppninni með marki sínu gegn Val.

Fram hefur komist í úrslit Bikarsins og tapað eftir þrjú síðustu skipti sem liði sló út Fylki (1981, 1986 og 2009).  Eina tap Fram fyrir Fylki í Bikarnum var í úrslitunum 2002.

Fram hefur fallið út í næsta bikarleik í síðustu tvö skipti eftir að hafa slegið Val út (1994 og 2001). Fram féll gegn Þór 1994 og gegn ÍA 2001.  Fram varð bikarmeistari árið 1980 eftir að hafa unnið Val í 16-liða úrslitunum.

Svipaða sögu er að segja um KR og Fylki, þ.e. Fram lék til úrslita og tapaði eftir að hafa unnið KR í bikarnum 1981 (4-1), 1984 (3-1), 1986 (6-2), 2002 (1-0) og 2009 (1-0).  Fram mætti líka Fylki öll þessi ár og vann að 1984 undanskildu.

KR vann ÍBV 1-0 í Eyjum í 32-liða úrslitunum.  Fram og KR eru einu liðin sem hafa unnið ÍBV í Deild eða Bikar til þessa, þar af KR-ingar tvisvar.  KR-ingar unnu Fjölni 2-1 í Grafarvogi í 16-liða úrslitunum og svo Þrótt 3-2 í 8-liða úrslitunum.  Þrír leikmenn hafa skorað fyrir KR í bikarnum í ár: Baldur Sigurðsson hefur gert þrjú mörk, Björgólfur Takefusa hefur gert tvö mörk og Kjartan Henry Finnbogason hefur gert eitt mark.

KR leikur sinn annan leik undir stjórn Rúnars Kristinssonar, nýs þjálfara liðsins.  Liðið vann 3-0 á Selfossi í fyrsta leik Rúnars.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l