Content

3.8.2010

Aftur í vinnuna og til Grindavíkur!

Grindavík - Fram
Pepsi-deildin 14. umferð
Grindavíkurvöllur
fimmtudaginn 5. ágúst kl. 19:15

Við vonum að allir hafi átt góða verslunarmannahelgi. Nú tekur alvaran við á nýjan leik gegn Grindavík. Framarar hafa verið ansi brokkgengir síðustu vikur en Grindvíkingar eru að styrkjast.  Framarar eru í 4. sæti með 20 stig og unnu Breiðablik í síðasta deildarleik en töpuðu fyrir KR í Bikarnum í síðasta leik á fimmtudaginn var.  Þar áður tapaði Fram fyrir FH og ÍBV og gerði jafntefli við Val, Hauka og Keflavík.  

Grindavík tapaði á þessum tíma fyrir Fylki og KR en hefur nú gert þrjú jafntefli í röð, gegn Selfossi og Stjörnunni heima og svo gegn Keflavík á útivelli. Grindvíkingar hafa verið við botninn í allt sumar.  Þeir hafa nú 9 stig í 10. sæti en eru með Selfoss og Hauka á hæla sér.  Grindvíkingar skiptu um þjálfara og fengu Ólaf Örn Bjarnason heim frá Brann í Noregi.  Hann hefur tekið til sín nokkra leikmenn, þeirra helsta Gjorgi Manevski frá Makedóníu, Hafþór Ægi Vilhjálmsson frá Val og svo Guðmund Andra Bjarnason heim frá Reyni Sandgerði.

Heima og úti

Grindvíkingar hafa ekki unnið leik heima í sumar, þeir hafa gert tvö jafntefli og tapað fjórum heimaleikjum.  Útivallargengi Fram er ekki mikið betra, en Fram hefur unnið einn útileik, gert þrjú jafntefli og tapað tveimur.

Mörkin

Ívar Björnsson hefur gert fimm mörk fyrir Fram og Hjálmar Þórarinsson fjögur.  Jón Guðni Fjóluson er kominn með þrjú mörk.  Almarr Ormarrsson og Tómas Leifsson hafa gert tvö mörk hvor.

Fyrir Grindavík hefur Gilles Ondo skorað sex mörk og Grétar Ólafur Hjartarson þrjú mörk. Gjorgi Manevski komst á blað í sínum fyrsta og eina leik gegn Selfossi með eitt mark.

Bönn

Kristján Hauksson
er í a.m.k. eins leiks banni vegna rauðs spjalds í síðasta leik.  Hjá Grindavík er Matthías Örn Friðriksson í banni vegna sex gulra spjalda.

Fyrri viðureignir

Stuðningsmenn Fram líta leiki gegn Grindavík sérstöku hornauga, enda gekk Fram bölvanlega með þetta lið frá fyrstu viðureignum 1995 fram á þessa öld.  Það var ekki fyrr en á fimmta keppnistímabili sem fyrsti sigurinn kom (2000, 3-1 í Laugardalnum, eftir níu viðureignir í deild án sigurs).  En frá og með 2000 hefur það gerst í fimm skipti af sjö (2000, 2001, 2003, 2004 og 2008)  að liðin hafa unnið sitt hvorn leikinn í Deildinni.  Nú ber svo við að Fram hefur unnið fimm leiki í röð í Deild og Bikar gegn Grindavík, seinni leikinn í Deildinni 2008, báða leikina 2009, bikarleik liðanna 2009 og svo heimaleikinn fyrr í sumar.  Ívar Björnsson og Hlynur Atli Magnússon tryggðu Fram 2-0 sigur á Laugardalsvellinum þann 20. maí.

Þann 20. september 2009 gerðu Ívar, Jón Guðni og Heiðar Geir Júlíusson eitt mark hver í 1-3 sigri Fram í Grindavík.  Árið áður gerði Paul McShane eitt mark og Grindvíkingar sjálfsmark þegar Fram vann 2-0 í Grindavík.

Fyrsti útisigur Fram gegn Grindavík kom árið 2001 (6. tilraun) og reyndar kom annar útisigurinn ekki fyrr en 2008 og sá þríðji 2009.  Tölfræði Fram á Grindavíkurvelli eru þrír sigrar, þrenn jafntefli og sex tapleikir.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l