Content

5.8.2010

Stórleikur FRAM - Levanger á morgun föstudaginn 6. ágúst 2010

Meistaraflokkur kvenna í handbolta leikur á morgun fyrsta æfingaleik sinn á tímabilinu.  Þá kemur stórlið Levanger frá Noregi í Safamýrina. 

Með Levanger leikur stórskyttan Ramune Pekarskyte sem er fyrrverandi leikmaður Hauka og fyrirliði Íslenska landsliðsins Rakel Dögg Bragadóttir.  En liðinu er stjórnað af hinum geðþekka stórþjálfara Ágústi Jóhannssyni.

Lið Levanger endaði í 9. sæti í norsku deildinni í fyrra og ætla sér stóra hluti á næsta tímabili og er æfinga og keppnisferð þeirra hingað til lands liður í þeim undirbúningi.

Leikurinn er góður undirbúningur fyrir komandi timabil fyrir FRAM og verður góð reynsla fyrir væntanlega leiki FRAM í Evrópukeppninni.

Leikurinn við Levanger er á morgun, föstudaginn 6. ágúst 2010, og hefst kl. 19:00.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l