Fram-Fylkir
Pepsi-deildin 15. umferð
Laugardalsvöllur
sunnudaginn 8. ágúst kl. 19:15
Fram er í 5. sæti með 20 stig en Fylkir í hinu níunda með 15 stig. Fylkir er undir stjórn Óla Þórðar annað árið í röð og hefur Óli farið á kostum að vanda. Spurning hvort að hann hressi ekki Þorvald aðeins. Bæði áttu dapurt kvöld í síðasta leik. Fram tapaði fyrir Grindavík og Fylkir tapaði fyrir Keflavík á fimmtudagskvöldið. Fram er að dragast aftur úr toppliðunum og allt í einu finna Fylkismenn þefinn af Grindavík og Selfossi.
Heima vs. úti
Fram hefur unnið fjóra heimaleiki af sjö og fengið alls 14 stig í Laugardalnum. Aðeins ÍBV hefur fengið fleiri stig heima eða 16 talsins. Fylkir hefur unnið tvo útileiki af sjö og gert eitt jafntefli.
Mörkin
Hjá Fram hefur Ívar Björnsson hefur gert fimm mörk fyrir Fram og Hjálmar Þórarinsson fjögur. Jón Guðni Fjóluson er kominn með þrjú mörk. Almarr Ormarrsson og Tómas Leifsson hafa gert tvö mörk hvor.
Fylkismenn eiga tvo af markahæstu mönnum Peps-deildarinnar. Albert Brynjar Ingason hefur gert átta mörk og Jóhann Þórhallsson hefur gert sex mörk. Þá er Pape Mamadou Faye gert þrjú mörk.
Bönn
Kristján Hauksson tekur út seinni leik sinn í tveggja leikja banni.
Þórir Hannesson Fylkismaður fékk rautt í síðasta leik.
Fyrri viðureignir
Jafnræði hefur verið með liðunum sl. tvö ár. Fram hefur ekki tapað fyrir Fylki á Laugardalsvellinum í síðustu þremur deildarleikjum, eða síðan 2005 þegar Fylkir vann 2-1. Frá og með 2007 hafa liðin mæst níu sinnum í Deild og Bikar og Fram hefur unnið fimm þeirra leikja, en þó eru þar af tveir bikarleikir. Fylkismenn hafa unnið einn leik og svo hafa liðin gert þrjú jafntefli í Deildinni. Frá upphafi (1983) hafa liðin gert átta jafntefli í Deildakeppninni, Fram hefur unnið sjö sinnum og Fylkir tíu sinnum.
Ólafur Þórðar stýrði Fram til 4 stiga gegn Fylki árið 2007, m.a. í 3-1 sigri í Laugardalnum. En áður en Óli tók við Fram átti Fram í nokkru basli með Fylki og hafði ekki unnið leik gegn þeim frá 2001.
Fram fylgdi þessu eftir undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar og vann báða leikina 3-0 árið 2008. Árið 2009 gerðu liðin 0-0 jafntefli í Laugardalnum og var það vel sloppið af hálfu Fram. Fram tapaði svo 2-1 í Árbænum en vann 2-0 í Bikarnum seinna um sumarið, á Laugardalsvellinum.
Liðin hafa þegar mæst tvisvar í ár. Fyrst gerðu þau 2-2 jafntefli í Árbænum, þar sem Hjálmar Þórarinsson jafnaði fyrir Fram með tveimur mörkum eftir að Fylkir komst í 2-0. Síðan var Hjálmar aftur á ferðinni þegar Fram vann 2-0 í bikarnum skömmu síðar.
Tilfinningin fyrir leik
Það verður fróðlegt að sjá viðtölin eftir þennan leik við báða þjálfarana, “það er næsta víst”... ;-)