
Framarar hafa á innan við ári missti fjóra af bestu knattspyrnumönnum sínum á árum áður - fjóra leikmenn sem léku saman með Íslandsmeistaraliði Fram 1962.
Grétar Sigurðsson, einn af marksæknustu knattspyrnumönnum Fram, er látinn. Grétar, sem fæddist 1. febrúar 1938, varð bráðkvaddur fimmtudaginn 5. ágúst 2010, lék með Framliðinu 1958-1967 og skoraði hann 28 mörk í efstu deild. Hann átti lengi vel markametið hjá Fram í 1. deild - bætti met Björgvins Árnasonar "Dalla", 17 mörk, sumarið 1961 og átti metið allt til Kristinn Jörundsson bætti það 1974, eða í 13 ár.
Ekki er ár síðan að þrír leikmenn sem voru Íslandsmeistarar með Grétari 1962 kvöddu - Geir Kristjánsson, Halldór Lúðvíksson og Rúnar Guðmannsson.
Grétar, sem var einn af bestu ballettdönsurum landsins á yngri árum, skoraði flest mörk Framara, sex, þegar Fram varð Íslandsmeistari 1962. Hann var fljótur og marksækinn - mjög aðgangsharður við markið og gaf aldrei eftir þegar hann sá markið fyrir framan sig. Grétar var útsjónasamur og fór vel með knöttinn - lék mótherja sína oft grátt, áður en hann skoraði, eða lagði upp mörk fyrir meðspilara sína. Þegar Grétar, sem er einn af Grettisgötu-strákunum í Fram, var í essinu sínu - dansaði hann með knöttinn í kringum mótherja sína er hann var að hrella þá. Grétar lærði þá list ungur á Grettisgötunni (á milli Klapparstígs og Frakkastígs), að fara styðstu leiðina að settu marki - og skora!
Frímann Helgason, íþróttafréttamaður Þjóðviljans á árum áður, lýsti hæfni Grétars best, er hann skrifaði eftir sigurleik Fram á Íþróttabandalagi Akureyrar, ÍBA, 1960: "Grétar skoraði glæsilega, "vippaði" knettinum fyrst yfir miðvörðinn og lagði boltann fyrir sig og lyfti síðan yfir markvörðinn."
Grétar skoraði mest fjögur mörk í leik í 1. deild - gegn Ísfirðingum 1962 á Ísafirði, 6:0. Það hefur enginn Framari leikið eftir í efstu deild, að skora fjögur mörk í leik.
Grétar kom í Framliðið sem ungur leikmaður á sama tíma, 1958, og félagar hans Guðjón Jónsson, Baldur Scheving og Rúnar Guðmannsson. Hann lék með Framliðinu til 1967 og þá lék hann fjölmarga leiki með hinum ýmsu úrvalsliðum.
Útför Grétars fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 16. ágúst, kl. 13.
Sigmundur Ó. Steinarsson
Hér á myndinni eru fimm leikmenn sem settu sterkan svip á knattspyrnuna á árunum fyrir og eftir 1960 - voru samferðamenn Grétars í knattspyrnunni. Grétar stendur aftast á myndinni. Hinir leikmennirnir eru Högni Gunnlaugsson, Keflavík og Ellert B. Schram, KR. Þórður Jónsson, ÍA og Ingvar Elísson, ÍA. Þetta var framlína B-landsliðsins sem vann A-landsliðið í 15 ára afmælisleik KSÍ, 2:0, á Laugardalsvellinum 1962. Högni og Grétar skoruðu mörk liðsins.