Content

18.8.2010

Í Vesturbæinn fimmtudagskvöld!

KR-Fram
Pepsi-deildin 16. umferð
KR-völlur
fimmtudaginn 19. ágúst kl. 19:15

Fram hefur aftur leik eftir furðu langt hlé sem tók ellefu daga.  Fram hefur nú tapað þremur leikum í röð gegn KR (bikar), Grindavík, og Fylki.  Allt saman leikir sem við hefðum gjarnan viljað vinna.  Sérstaklega var sárt að tapa fyrir Grindavík og Fylki eftir ágætt gengi gegn þeim liðum sl. misseri.  Síðasta góða minningin er 3-1 sigur gegn toppliði Breiðabliks, þar sem Fram sýndi allar sínar bestu hliðar (og var jú líka skipað flest öllum sínum bestu mönnum).  Það verður fróðlegt að sjá hvort að Sam Tillen og Hjálmar verði orðnir góðir að meiðslum.  Allt tént eru Kristján og Jón Guðni (né nokkur annar Framari) ekki í banni að þessu sinni.

Íslandsmótið er langt frá því að vera búið og það eru 21 stig eftir í pottinum. Næsti leikur er gegn KR og það er ætíð tilhlökkunarefni að mæta þeim.  Skiptir þá engu hvort Fram hafa tapað x leikjum í röð á einhverjum velli, að allt hafi farið í hönk eftir 2-3 tapið í Laugardalnum og svo enn meiri hönk eftir 0-4 tapið í bikarnum síðast þegar þessi lið mættust.  Tilhugsunin um að sigur sbr. sigrana tvo í fyrra, er fyrir hendi.

Umferðin er þegar hálfnuð og þegar leikur hefst verður Fram er í 8. sæti með 20 stig og KR er í 6. sæti með 22 stig.  FH er innan seilingar í 3. sæti með 26 stig en þeir gætu náð 29 stigum með sigri gegn Grindavík.  Eftir sigur FH í Bikarnum bendir flest til þess að 4. sætið gefi UEFA-sæti að ári.  Slagurinn er harður: Stjarnan er kominn í 4. sæti með 23 stig eftir þessa umferð en Keflavík er í 5. sæti með 23 stig og mætir Selfossi á fimmtudag.  Valur og Fylkir verða eftir þessa umferð með 22 og 18 stig.

KR-ingar hafa verið í miklu stuði og yfirleitt spilað fínan fótbolta eftir að KR rak Loga Ólafsson og lét Rúnar Kristinsson í brúnna í staðinn.  Þeir hafa unnið alla deildarleiki innanlands síðan Rúnar KR tók við, þ.e. gegn Selfossi, Fram, Stjörnunni, Keflavík og FH. KR tapaði síðast deildarleik gegn Breiðabliki í Kópavogi þann 27. júní. 

Heima og úti


Fram hefur aðeins unnið einn útisigur í sumar (á Selfossi) og hefur tapað öllum leikjum á KR-vellinum frá 2002.  KR-ingar hafa unnið þrjá leiki heima, gert tvö jafntefli og tapað tveimur heimaleikjum.

Bönn

Enginn Framari eða KR-ingur er í banni að þessu sinni.

Mörkin

Ívar Björnsson hefur gert fimm mörk fyrir Fram. Hjálmar Þórarinsson og  Jón Guðni Fjóluson hafa gert fjögur mörk hvor.  Almarr Ormarrsson og Tómas Leifsson hafa gert tvö mörk hvor.

Hjá KR hefur Björgólfur Takefusa gert sex mörk.  Kjartan Henry Finnbogason og Guðjón Baldvinsson hafa gert fjögur mörk hvor.

Tilfinningin fyrir leik

1993 eða 2000?  Ekki viss....kannski smá 2002?


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l