Content

23.8.2010

Þrenna Almarrs og Fram vann Selfoss!


Almarr Ormarrsson gerði þrennu fyrir Fram gegn Selfossi. Fram lagði Selfoss að velli 3-1 og mjakaði sér í 23 stig í Pepsi-Deildinni.  Staðan var 2-1 í hálfleik, en Sævar Þór Gíslason hafði jafnað fyrir Selfoss eftir að Almarr kom Fram í 1-0.

Þetta er í fyrsta þrenna Framara í fjögur ár, eða síðan Helgi Sigurðsson (nú Víkingi R) tryggði Fram 3-2 sigur á Leikni sumarið 2006, en það var í 1. Deild.  Sama sumar gerði Jónas Grani Garðarsson (markakóngur Efstu Deildar með Fram 2007) þrennu fyrir Fram í 4-0 sigri á Þór Akureyri í sömu deild.  Hvorugur þessara leikja fór Fram á Laugardalsvellinum; Helgi gerði sína þrennu á Leiknisvelli en Jónas Grani á Valbjarnarvelli, sem var heimavöllur Fram þetta sumar.

Það þarf að fara aftur til 2001 til að finna síðustu þrennu Framara í Efstu Deild.  Það var 1. ágúst að Fram var statt á Hásteinsvelli að leika við ÍBV, þegar Ásmundur Arnarson (núverandi þjálfari Fjölnis) setti þrennu á Eyjamenn.  Sigurinn var Fram mjög dýrmætur, enda var Fram þarna í harðri fallbaráttu.

Það voru svo Ásmundur og Helgi sem gerðu síðustu þrennur Framara á Laugardalsvellinum.  Ásmundur gerði þrennu gegn Val 1998 í 3-1 sigri og Helgi gerði þrennu í 5-0 sigri á Fylki 1993.  Í millitíðinni gerði Ágúst Ólafsson þrennu fyrir Fram á Valbjarnarvellinum, í 8-0 sigri á Þór í Næst Efstu Deild árið 1996.




« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l