Content

25.8.2010

Meistaraflokksleikir: Daði orðinn fjórði hæstur - Halldór Hermann með 100. leikinn


Daði Guðmundsson lék sinn 312. mfl. leik gegn KR. Hann jafnaði þar með Jón Sveinsson í 4.-5. sæti yfir leikjahæstu leikmenn Fram.  Hann er svo einn í 4. sæti eftir leikinn gegn Selfoss með 313 mfl. leiki.  Aðeins  Pétur Ormslev, Kristinn Rúnar Jónsson og Marteinn Geirsson hafa leikið fleiri opinbera leiki fyrir félagið.

Næstu Daða af núverandi leiknönnum er Ívar Björnsson. Ívar lék sinn 150. mfl. leik gegn Grindavík 5. ágúst sl.  Hann varð 38. Framarinn sem nær þeim leikjafjölda.

Halldór Hermann Jónsson lék sinn 100. mfl. leik gegn KR. Hann er 61. Framarinn sem nær þessum leikjafjölda.  Halldór Hermann kom til Fram fyrir tímabilið 2008 og var því tæp þrjú keppnistímabil að ná þessum leikjafjölda.  Hann hefur hins vegar verið fastamaður í liðinu nánast frá byrjun.

Nú þegar eru sex núverandi leikmenn með 100 leiki fyrir félagið, Daði, Ívar, Kristján Hauksson, Hjálmar Þórarinsson, Hannes Þór Halldórsson og Halldór Hermann. Næstir inn í 100 mfl. leiki eru Sam Tillen og Jón Orri Ólafsson.  Sam lék sinn 98. mfl. leik gegn Selfossi og Jón Orri lék þá sinn 97. mfl. leik.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l