Content

27.8.2010

Fram í Garðabæinn sunnudag!

Stjarnan-Fram
Pepsi-deildin 18. umferð
Garðabæjarvöllur
sunnudaginn 29. ágúst


Fram heimsækir Stjörnuna á sunnudagskvöldið, áhugamönnum um plastefni til mikillar gleði. Enn eru 15 stig eftir í pottinum. Fram er með 23 stig og fékk 34 stig í fyrra, þannig að enn er hægt að gera betur í ár. Andstæðingarnir í Stjörnunni eru líka stigi á undan okkar mönnum, þéttur pakki allt í kring og því stutt milli þess að enda í efri helmingi Deildarinnar eða nálægt neðstu liðunum. Slíkt skiptir máli.

Fram hristi af sér þriggja leikja taphrinu og lagði Selfoss í síðasta leik.  Stjarnan er á fínu skriði og hefur fengið sjö stig af níu í síðustu þremur leikjum en tapaði þar áður fyrir KR á útivelli.

Fyrri viðureignir

Fram vann 2-1 í fyrri umferðinni á Laugardalsvellinum.  Ívar Björnsson og Tómas Leifsson gerðu mörk Fram en Hilmar þór Hilmarsson svaraði fyrir Stjörnuna. Fram hefur unnið þrjá síðustu leiki liðanna í Laugardalnum (2006, 2009, 2010) en tapaði þar síðast árið 2000.  Liðin mættust ekki 2001-2005 og 2007-2008.

Í Garðabænum er sagan önnur og lakari fyrir okkur Framara. Af þeim leikjum sem Fram á eftir er þetta einna erfiðasti leikurinn m.t.t. síðustu viðureigna. Stjörnumenn unnu síðustu viðureign (2009) 4-1, þar sem Ingvar Ólason svaraði fyrir Fram eftir að Stjarnan komst í 4-0.  Án efa slakasti leikur tímabilsins 2009 hjá Fram.  Liðin gerðu 3-3 jafntefli þarna í fyrstu deildinni 2006. Fram vann í Garðabænum árið 2000 en það var á gamla grasvellinum í Garðabæ. Fram er því enn án sigurs á plastinu í Garðabæ en þetta verður aðeins þriðja tilraunin.

Heima og úti


Stjarnan hefur leikið á gervigrasi frá 2006 en þess má geta að eini útisigur Fram í sumar kom á gervigrasinu á Selfossi.  Fram er nú það lið Pepsi-deildarinnar sem er með fæst stig á útivelli, eða sex talsins, einn sigur, þrjú jafntefli og fjögur töp.

Stjörnumenn eru sterkir heim að sækja, hafa unnið fjóra heimaleiki, gert þrjú jafntefli og tapað aðeins einu sinni.

Mörkin

Stjarnan skorar mikið og Halldór Orri Björnsson er nú markahæsti Stjörnumaðurinn í Efstu Deild frá upphafi. Hann skákaði þar með góðkunningjum okkar Framara frá fyrri tíð, Valdimar Kristóferssyni og Ingólfi Ingólfssyni.  Halldór Orri hefur gert 11 mörk í sumar og er næst markahæstur í Deildinni. Stjarnan hefur gert 34 mörk í Deildinni og aðeins Blikar hafa gert fleiri mörk eða 36 talsins.  Næstir Halldóri koma Ólafur Karl Finsen og Ellert Hreinsson með fjögur mörk hvor.

Almarr Ormarrsson er nú markahæsti Framarinn í Pepsi-Deildinni með sex mörk.  Ívar Björnsson hefur gert fimm en hann hefur ekki skorað síðan í fyrri leik liðanna í júní.  Hjálmar Þórarinsson hefur gert fjögur mörk en hann skoraði síðast í sigurleiknum gegn Blikum, hefur verið talsvert meiddur síðan þá og var svo í því að búa til mörk fyrir Almarr í síðasta leik.

Bönn

Tveir Framarar eru í banni vegna fjögurra gulra spjalda, Tómas Leifsson og Jón Gunnar Eysteinsson. Jón Gunnar missir þar með af leik í fyrsta sinn í Pepsi-Deildinni.  Aðeins tveir leikmenn Fram munu þar með eiga möguleika á að leika alla leikina í sumar, Hannes Þór Halldórsson og Almarr Ormarsson.

Stjörnumenn eru bannlausir í þessum leik.



« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l