Content

30.8.2010

Baráttusigur í Garðabænum

FRAM vann mikinn baráttusigur í Garðabænum á sunnudagskvöldið er liðið mætti Stjörnunni á heimavelli þeirra síðarnefndu. Það var Ívar Björnsson sem kom FRAM yfir á 18. mínútu en Almarr Ormarsson átti þá sendingu inn í teig og Ívar skallaði boltann í slánna og fylgdi svo vel á eftir og kláraði málið. Heimamenn jöfnuðu leikinn 10 mínútum síðar með ágætis langskoti sem var óverjandi fyrir Hannes Þór.

Heimamenn komust svo yfir á 56. mín en þá tók FRAM liðið til sinna ráða. Jón Orri Ólafsson kom inn á, í vörnina og Jón Guðni Fjöluson var færður fram á miðjuna. Sú skipting bar heldur betur árangur því FRAM jafnaði leikinn á 77. mín og þar var verki Jón Guðni Fjóluson sem fékk stungusendingu frá manni leiksins Ívari Björnssyni sem skoraði svo sigurmark FRAM rétt fyrir leikslok með frábæru skoti.

Þessi sigur var afar kærkominn því uppskeran á þessum velli fyrir ári síðan var heldur döpur. Stigin þrjú lyfta FRAM liðinu upp í 5. sæti í deildinni.

Næsti leikur liðsins er svo mánudaginn 13. september gegn Keflavík á Laugardalsvellinum.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l