Content

31.8.2010

Jón Guðni & Almarr í U21

Eyjólfur Sverrisson, landsliðsþjálfari U21 landsliðs karla, hefur valið Jón Guðna Fjóluson & Almarr Ormarsson í hópinn sem mætir Tékklandi í riðlakeppni fyrir EM 09/11, 7. september næstkomandi.

Leikurinn hefur mikið vægi því íslenska liðið á ennþá ágæta möguleika á því að tryggja sér sæti í umspili um sæti í úrslitakeppni EM sem fer fram í Danmörku á næsta ári.  Efsta lið riðilsins fer í umspil ásamt þeim fjórum þjóðum er bestan árangur hafa úr riðlunum tíu.  Ísland er sem stendur í öðru sæti riðilsins með 16 stig eftir sjö leiki.  Tékkar eru í efsta sæti, hafa 18 stig eftir sex leiki.  Tékkar taka á móti Þjóðverjum á föstudaginn og fari Þjóðverjar með sigur af hólmi í þeim leik, geta Íslendingar tryggt sér efsta sæti riðilsins með sigri á Tékkum.

Hópinn má svo sjá með því að smella hérna.


« Til baka | Senda á Facebook
  • Landsbanki
  • Errea
  • Sjóva
  • Sjóvá
  • Errea
  • Sportis
  • Bootcamp
  • N1
  • Coke
  • Bílaleiga Akureyrar
  • Errea
  • Nóatún

Leitarv�l