
Sigríður Björk Þorláksdóttir, þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu, hefur látið af störfum - hún er flutt til Egilsstaða, þar sem hún fékk kennarastarf. Sigríður Björk tók við þjálfun kvennaliðsins í byrjun ársins - þegar ákveðið var að senda meistaraflokk Fram á ný til keppni á Íslandsmótinu eftir nokkura ára hlé.
Framliðið lék í B-riðli 1. deildar kvenna. Lék fjórtán leiki, vann tvo, gerði fimm jafntefli og tapaði sjö leikjum. Markatalan var 22:37.
Sigríður Björk, Áslaug Eik Ólafsdóttir, Bergþóra Gná Hannesdóttir og Elísabet Sara Emilsdóttir léku alla fjórtán deildarleikina, en alls komu 23 leikmenn við sögu með Framliðinu á Íslandsmótinu.
Áslaug Eik varð markahæst með 5 mörk, Elísabet Sara og Sigríður Björk skoruðu 4 mörk hvor og Bergþóra Baldursdóttir þrjú mörk.
Sigríður Björk vann gott starf hjá Fram. Við þjálfun kvennaliðsins tekur Haukur Hilmarsson, sem hefur þjálfað 2 og 3. flokk karla.
Hér á myndinni má sjá Sigríði Björk í síðasta leik Fram á Íslandsmótinu - á skot að marki Hattar frá Egilsstöðum í leik í Safamýrinni, 1:1.
SOS