Undirbúningur meistaraflokka karla og kvenna fyrir komandi vetur stendur nú sem hæst og meðal liða hans er þáttaka í haustmótum.
Í kvöld, 1. september, hefst Ragnarsmótið á Selfossi og mun karlaliðið spila þar eins og undanfarin ár. Mótherjar þeirra í riðlakeppninni verða Haukar og Valur. Leikurinn við Hauka verður í kvöld, 1. september, og leikurinn við Val verður svo föstudaginn 3. september og hefjast báðir leikirnir kl. 20. Leikið verður svo um sæti laugardaginn 4. september.
Leikirnir á Ragnarsmótinu eru oft á tíðum bráðskemmtilegir og eru Framarar hvattir til að fá sér bíltúr austur fyrir fjall til að fylgjast með mótinu.
Dagana 11. og 12. september mun karlaliðið síðan taka þátt í Opna Norðlenska mótinu á Akureyri.
Kvennaliðið er að fara í æfingaferð til Vestmannaeyja og mun síðan taka þátt í Opna Reykjavíkurmótinu sem haldið verður dagana 17. - 19. September.
Hægt er að lesa frekar um mótin á www.hsi.is
N1 deildin hefst síðan 30. september hjá körlunum með heimaleik gegn Selfossi og hjá konunum 2. október með heimaleik gegn Val.
SA