Jæja þá er boltinn byrjaður að rúlla, klístraður og kámugur, innihandboltinn er alltaf skemmtilegur og sérílagi þegar haustar og húmar að, kuldinn læðist að og bítur, já þetta markar upphaf hanfboltavertíðarinnar.
hér er dagskráin:
Ragnarsmótið 1.-4. sept
Íþróttagrein: Handbolti
Staðsetning: Vallaskóli.
Miðvikudagur 1. sept:
HK – FH => kl. 18:30 -- HK vann
Haukar – Fram => kl. 20:00 -- Haukar unnu
Fimmtudagur 2. sept:
HK – Selfoss => kl. 18:30
Haukar – Valur => kl. 20:00
Föstudagur 3. sept:
Selfoss – FH => kl. 18:30
Fram – Valur => kl. 20:00
Laugardagur 4. sept:
Leikur um 5. sæti => kl. 12:00
Leikur um 3. sæti => kl. 16:00
Leikur um 1. sæti => kl. 18:00
-------------------------------------------------------
myndir;

Magnús Gunnar Erlendsson, sonur Erlendar rafspennudótagræjustjóra Kópavogs og næsta nágrennis

Matti skorar úr horninu........

.......... og svo er bara að hunskast heim í hvelli...

flott spil.

góð barátta þarna... hmmm víti ??

Halli gamli Þorvarðar var sprækur á línunni.

Matthías Daðason leysir hér hornið vel og skorar, hann fær líklega stórt verkefni í vetur í fjarveru
Stefáns Baldvins, sem gengur nú um í gifsi eftir uppskurð.

þetta er Róbert Aron, skyttan vinstra megin

Jói búinn að sveifla sér inní teig og skora úr alls engu færi...

þetta tekur á.

MMMM gleðileg sjón, Siffi mættur í sinn raunverulega búning, Blátt og hvítt fer vel við Burgundý litað
hárið og þarna kom ansi kunnuglegt undirskot og mark !

Gí.... Za!!! Grétar í hraðaupphlaupi og skorar

Arnar Birkir settann glæsilega þarna

Reynir Þór Reynisson þjálfari í leikhléi þarna.
Þar sem undirritaður verður ekki á staðnum fram að helginni er tilvalið fyrir fólk að renna austur yfir fjall og kíkja á leik, þetta er ekki langur spölur. Því koma ekki fleiri myndir af mótinu frá mér, bið ykkur að afsaka það.
m. kveðju Bóas Börkur.