Sveinbjörn Jónasson skrifaði í dag undir
eins árs samning við Knattspyrnudeild FRAM.
Sveinbjörn kemur til liðsins frá Þrótti Reykjavík, á
síðasta keppnistímabili skoraði hann 27 mörk í 26 leikjum með Þrótti í deild og
bikar. Hann skoraði meðal annars þrennu á móti okkur þegar liðin mættust í
Valitor bikarnum í fyrra.
Sveinbjörn mun mæta á sína fyrstu æfingu
með meistaraflokki á morgun og hitta þar fyrir nýju samherja sína.
Knattspyrnudeild FRAM er mjög ánægð með að
hafa náð samkomulagi við Sveinbjörn og býður hann hjartanlega velkominn í Safamýrina.