Lið umferða 1-9 í N1 deildinni var valið í hádeginu í dag.
Einar Jónsson var valinn þjálfari umferðanna en undir hans stjórn situr liðið á toppi N1 deildarinnar og vann meðal annars sannfærandi sigur á Val í síðustu umferð.
Þær Stella Sigurðar og Birna Berg eigna sér skyttustöðurnar í liðinu og skal engan undra enda báðar spilað afburðavel það sem af er móti.
Handknattleiksdeild FRAM óska þeim öllum innilega til hamingju með verðskuldað val.